sunnudagur, desember 24, 2006

GLEÐILEG JÓL!


Kæru vinir og fjölskylda!

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við hlökkum til að hitta ykkur á nýja árinu.

Jólunum eyðum við í Svíþjóð með Söru, Helga, Fannari, Viktori, Söndru og mömmu og pabba. Um áramótin verðum svo farin aftur til Danmerkur og verðum tvö saman að skjóta upp.

Vonum að þið hafið það ofsalega gott yfir hátíðirnar!

Kveðja, Guðlaug og Svenni.

fimmtudagur, desember 07, 2006

Loksins fær pabbi að fara í golf

Golfsettið sem foreldrar mínir af fyrstu og annarri gráðu, sem og fyrsta og annars stigs systkini mín gáfu mér er komið inn í stofu hjá mér. Margt sem áður var aðeins hjá hinum, okkur vantar líka. Ég vil eiga jólin með þér, með þér, með þér. Og allir saman!

Allavega, mynd:



Massaflott sett af kjuðum. Takk fyrir mig. Þetta verður ábyggilega mikið notað, en ekki of mikið. Ég lofa því.

Ég er annars næstum búinn með 10 eininga kúrsinn FEM-Heavy, skila á morgun þriðju skýrslunni sem verður upp á svona slaka danska 10.

Ég er virkilega farinn að íhuga hvort maður taki ekki bara golf á þetta eftir prófið þann 12.

Rosalega þarf ég líka að pissa. Ég verð eiginlega að faa til að láta þvag.

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Hann á afmæli í dag... húrra, húrra, húrra!



Veiðiklóin Svenni á afmæli í dag! Hann er hvorki meira né minna en 25 ára. Þrefalt húrra fyrir honum!!!

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Nyheter av Ingienörene

Ég og Guðlaug erum loksins bæði búin að ákveða mastersverkefni. Guðlaug mun hanna mjög kewl hús og ég mun pæla í 4D material science.

Rafnar og Sólveig buðu okkur í mat í gær, Tyksteg, gott. Mig langar núna í lambakótelettur vegna þessað Rafnar nefndi kallamat og þá varð mér hugsað til þess þegar ég, Pabbi og Willy hinn freki fengum ca. 30 kótelettur, steiktar að Pabba sið, þ.e. með miklu smjöri í tvo tíma við 200 gráður, með soðnum kartöflum. Það var gott.

Slayer eru mestu töffarar sem ég hef nokkurn tímann séð, fyrir utan Erling náttúrulega. Ég notaði eyrnatappa á tónleikunum í Malmö, sem er alls ekki svo vitlaust.

Keane tónleikarnir voru alveg frábærir líka, eiginlega skemmtilegri því ég var umkringdur mun fallegra fólki þar, og maður víst bara mjög hégómagjarn. Tryggvi bætti þó aðeins upp Slayerinn með innilegum hlátrasköllum vegna gúmmítöffara með túss á handleggjunum.

Nú hef ég farið á Anthrax, Metallica og Slayer sem ansi vel af sér vikið fyrir svona graðhest eins og mig. Vantar bara að fara á Megadeth og Pantera, en það verður víst aldrei að veruleika. Rust in Peace Dimebag.

Það er allt of mikið að gera í skólanum. 5 tíma svefn er að verða staðallinn og ég á að skila tveimur stórum ritgerðum þann 8.desember. Svo verður próf á 12. des og þá er ég búinn en Guðlaug á þá eftir níu daga og þrjú próf.

Svo verð ég að fara að finna mér golfsett fyrir afmælispeninginn. Ekki verður það leiðinlegt fyrir jólin.

Well, verð að fara að fá mér að borða einhvern danskan óþverra.

laugardagur, október 28, 2006

Purusteik í kvöld!

Tvö kíló af svínakjöti skal vera nóg fyrir okkur og Gyðu.

Webcam.

Kjöthitamælir, sem kostar meira en Webcam. Markaður og eftirspurn í þversögn við sjálf sig. Framleiðslukostnaður hugsanlega meiri við kjöthitamælinn. Erlingar og Jóhönnur að setja þetta saman eftir skóla.

Miði á Slayer í Malmö.

Tannholdsbólga sökkar! Árans nautakjöt.

Opeth rokka áfram, og smá Strapping Young Lad. Tryggvi kominn í málið.

Ekkert HAM í kvöld, heldur Kam.

Silfurskottur og aðrar þannig skottur eru ógeð. Af hverju er þá sagt um sætar smástelpur, litla skottan?

Kýrhausinn inniheldur ýmislegt undarlegt.

Geðklofi kemur oft fram uppúr tvítugu.

10. nóv: Keane tónleikar.

17. nóv: Slayer tónleikar.

Geðklofi kemur oft fram uppúr tvítugu.

Hef hlustað á Prince, Björk, Tom Waits, Sigurrós, Steely Dan, Slayer, Cardigans, Opeth, Justin Timberlake, Queen, David Bowie, Strapping Young Lad og Smiths í dag. Fílaði eiginlega allt bara þokkalega.

Geðklofi kemur oft fram uppúr tvítugu.

Spurning: Er einhver annar en ég með fjölbreyttari tónlistarsmekk?

þriðjudagur, október 10, 2006

Ég hef nú ekki mikið að segja...

En ég er að horfa á Arnold, hann segir reglulega aaarrggghhh!!!

Nú eru 5 vikur síðan bíllinn okkar rispaðist síðast og viti menn, við tókum eftir nýrri rispu á honum í dag. Blár bíll í kaupinhafn mun vera sökudólgurinn. Ég setti mann nokkurn, Horatio Caine, í málið.

Einhverjum ungum jafnaðarmönnum fannst greinilega múhameðsmálið vera orðið hálfdautt svo að þeir ákváðu að vekja upp þann draug með því að hafa svona múhameðsteikingakeppni og taka það upp á vídeó. Frábært!

The Science of Sleep er góð mynd eftir sama leikstjóra og gerði The Eternal Sunshine of the Spotless Mind, en frekar skrýtin.

Ég á iPod universal dock með fjarstýringu. Frábært.

Ég er byrjaður að forrita í fortran90.

Fredriksborg slot eru Versalir dana.

Ég hef fengið beikon 4 af 5 síðustu dögum. Frábært?

Nú hef ég ekkert að segja, held ég fái mér bara kók.

mánudagur, september 18, 2006

Rokk

Það á enginn rokkari eftir að kaupa plötu með Supernova.

Opeth rokka feitt.

Eins gera Strapping Young Lad hálsa þreytta.



Ef flensa væri starfsgrein þá væri hún verr metin en stöðumælaverðir.

Það er ótrúlega mikið betra að vera í Danmörku á bíl en:
Að vera ekki í Danmörku á bíl,
að vera ekki á bíl í Danmörku,
að vera ekki í Danmörku ekki á bíl.

Bíllinn okkar Guðlaugar er rispaður á fimm vikna fresti, að meðaltali.

föstudagur, ágúst 18, 2006

Gott að vera aftur með slétttölu tennur

Halló, sorglegi bloggfíkill. Hér kemur sorgleg bloggfærsla. Ég, Svenni, ligg núna uppi í rúmi tengdaforeldra minna og hlusta á Steven Wright sem er mjög fyndinn gaur.
Ég fór til verkamanns í gær í endajaxlatöku. Hann notaði kúbein og vélsög til að ná kvikindinu upp ú líkama mínum. Það var frekar vont.
Aðgerin byrjaði á því að hann tróð deyfingarlyfi í kjálkann á mér og fór svo að tala um veiði við mig. Hann er sko að fara í Laxá í Mývatnssveit um helgina svo að hann vildi endilega vita sem flest. Hann hélt mér þannig á spjalli þar til hann skildi ekki hvað ég var að segja og þá byrjaði hann að krukka í mér.
Gaurinn er algjör sérfræðingur í þessu svo að hann byrjaði á að skera burt húðina í einum skurði og svo losaði hann um tönnina með kúbeininu sínu, skar tönnina í tvennt, braut krónuna af og togaði rótina upp með töng. Daginn eftir er ég bara þokkalega vel settur; frekar bólginn en líður bara nokkuð vel.
Þegar maður fer í svona tannuppskurð þarf maður að lifa á maukfæði nokkra daga eftirá. Ég fann mig því knúinn til að fá mér nokkuð vel af ómaukfæði fyrir aðgerðina. Ég hafði því tvo möguleika; Risastór Honey bacon á Quizno's eða Heavy Special. Nú hef ég farið fjórum sinnum á Quizno's í sumar en einungis tvisvar á Amerikanskí stælinskí. Ég kaus því að taka stælingsflokkinn á þetta en fannst ekki nóg að fá bara einn Heavy svo að fékk mér tvo. Loksins. Þannig gat ég einbeitt mér að því hve gott kjöt og hversu góð máltíð einn Heavy í raun og veru er. Þegar sá fyrsti var búinn þá var heil máltíð eftir og það er líka mjög gott.
Núna nenni ég hins vegar ekki að skrifa meira en til að reyna að fá staðfestingu á því að fólk lesi þetta, ætla ég að hafa getraun í lokin.
Ertu búinn að láta taka úr þér endajaxlana líka?

mánudagur, júlí 03, 2006

Gamla góða Ísland!

Jæja, heldur betur kominn tími á blogg. Við erum núna búin að vera á Íslandi í tæpar þrjár vikur! Tíminn líður aldeilis hratt á þessu skeri. Við erum bæði búin að vera að vinna síðan við stigum fæti á landið og erum búin að kaupa okkur bíl - ekki lengi að detta inn í "pakkann". Bíllinn sem við keyptum okkur heitir Skoda Fabia og er station-bíll, hentar einkar vel fyrir farangur gesta okkar í Köben ;)

Margt annað hefur nú verið brallað síðan við komum; heimsóknir til lítilla kríla (til hamingju Gróa og Íris), Stíghús, Sveðjukot, golf, Sara systir og Fannar hennar í heimsókn (sakna ykkar), heimsóknir til fjölskyldu og vina, útskriftarveislur (til hamingju allir útskrifaðir)... yndislegt! Við búum núna heima hjá mömmu og pabba og það eru allir velkomnir í heimsókn :) Við erum með gömlu íslensku númerin okkar.

Ég er búin að skella inn myndum frá Spánarferðinni og mun setja inn myndir úr útskriftarveislum mjög fljótlega. Spánarferðin heppnaðist vel; vorum temmilega mikið í sólbaði, fórum í skoðunarferð til Granada, í vatnagarð og á ströndina. Húsið var náttúrulega alveg geggjað!!! Útsýnið (eins og þið sjáið á myndunum) var óraunverulegt en svo frábært - ekki slæmt að liggja þarna við sundlaugina.

miðvikudagur, júní 28, 2006

Gaman

Ég hef mikið gaman af því að borða nammi. Sérstaklega hef ég gaman af því að borða snakk og kók, og raunar nokkurn veginn flest með kóki. Ykkur rekur því eflaust í rogastans þegar ég segi ykkur að ég hafi ekki enn fengið mér kók og hraun. Þetta er hins vegar staðreynd.

Anyway. Ég er sumsé ekki alveg orðinn góður í golfi. Tók um daginn Selfossvöllinn með Begin og Kaffinu og fór hann á 69 höggum, en síðast fór ég hann á 60 höggum. Þessu skelli ég algerlega á déskotans driverinn sem er hættur að vera vinur minn. Hola 2 var tekin á 14 höggum með heilum þremur penalty déskotaeindum.

Déskotaeind. Skrýtið orð sem lýsir atburði, hlut eða jafnvel ástandi sem má til fjandans fara.

Gyða (ofsafengna) kom í heimsókn um daginn að vitja ástandsfrystis síns (ástandsfrystir=myndavél) og kom það upp á daginn að hún ætlar að taka golfingsflokk á þetta svo að ég lagði til að Stuðlaugin djoínaði og lagðist sú tillaga bara vel í krádið. Þetta tel ég að auki líkurnar á því að ég og Stuðlaugin gætum stundað boltatýnslu saman. (Já með ypsilon-í-i) Markmiðið er að týna boltanum í holunni, ik'?

Jæja nú er nóg komið. Killingsflokkur. Mávahlíðarsyndrómið. Skaufaberg. Jói teik.

föstudagur, júní 23, 2006

Dude!

I like just remembered. Ég bloggaði einu sinni. Eaaa... reyndar bloggaði ég miklu oftar en einu sinni.
Ég fór í golf í gær á Hveragerðisvöllinn með Upphafi og endi alls ills og ég tók hringinn á 53 höggum, sem er 4 betra en síðast. U&E_ai átti mjög ójafnt kvöld, tók nokkrar 10 og 12 högga holur, en tók svo fugl á einni par 3 holu. Ehhm..., jamm, bara svo að koma vel fyrir. Allskonar.

miðvikudagur, maí 31, 2006

Maðkur í mysunni, mý á mykjuskán, maur á... kökunni minni?

Já, það skemmtilega atvik átti sér stað í dag að við Svenni drifum okkur loksins á litla sæta kaffihúsið í Vedbæk sem við erum búin að tala um síðan við sáum það fyrst. Þar er hægt að sitja úti, alveg við ströndina og horfa alla leið yfir til Svíþjóðar! Við ákváðum (sem betur fer) að kíkja aðeins inn í litla sæta kaffihúsið en ekki setjast beint út og láta þjóna okkur. Svo þegar inn var komið blasti við okkur bar og kælir með nokkrum álitlegum kökum og tertum. Það fyrsta sem ég sá inni í kælinum, fyrir utan kökurnar, var lítill maur. Við hugsuðum, jæja, einn maur, hvað er það? Svo Svenni skellti sér vitaskuld á sneið af súkkulaðiköku og ég bað um gulrótarköku. Svo var diskunum skellt á afgreiðsluborðið fyrir framan okkur og við báðum um drykki með. Á meðan stúlkan lagaði Café Latte varð mér litið á þessa girnilegu sneið af súkkulaðiköku sem beið Svenna - á henni var enn einn maurinn í góðum fíling. Ekki enn kominn með sykursjokk greinilega! Ég benti stúlkunni á þennan viðbjóðslega maur sem trítlaði um á kökunni og hún ætlaði nú bara að skera nýja sneið af köku handa okkur. Ég þakkaði fyrir pent og sagðist ekki ætla að borða eina né neina köku hjá henni! Jakkibjakk! Ég sá sem sagt einn maur inni í kælinum og annan á kökusneiðinni... hver heldur að þeir hafi verið bara tveir??? Þar sem er maur þar eru maurar! Eftir að hafa skilað kökusneiðunum og ekki borgað krónu fyrir leið okkur ekki vel á þessu litla sæta kaffihúsi, sem við vorum búin að tala svo lengi um, svo við skelltum í okkur kaffi og kóki og fórum í fússi og fengum okkur ís í plastumbúðum!

þriðjudagur, maí 30, 2006

Ég var einu sinni nörd

Hæ, hva' segiru? Flooottt, gott a heyra.

Ég er búinn að vera að Matlabast sem aldrei fyrr þessar síðustu vikur. Ég er búinn að læra heilan helling, t.d. að búa til avi fæla í Matlab, mega svalt. Annars er þetta verkefni, sem ég hélt að yrði mér aldurtili, bara búið að vera frekar þægilegt. Góð upprifjun á námsefni kúrsins og það jefur líka gefið mér einhverja stefnu varðandi mastersverkefni. Ég er sumsé frekar líklega að fara mastera ólínuleg sveiflufræði, sem er bara töff.

Varðandi þá karlmenn sem munu striplast með mér á Spáni, þá vil ég bara láta þá vita að ég hefi mér tvær flíkur gekeyptar sem eru appelsínulitar. Kannski eru þetta dönsk áhrif, drengir hér í landi eru frekar metró/hýr-ish. Allavega, ef þið viljið sjást í nærheit minni, þá skuluð þið leita eftir gulum og bleikum litum.

Annars er ég búinn að nördast svo mikið undanfarið að það hálfa væri líklega mjög alvarlegt líka. Ég hef verið að keyra báðar tölvurnar okkar samtímis í allt að 60 þúsund sekúndur (you do the math) til að búa til vídeó sem eru svo náttúrulega massa kúl. Núna er ég einmitt að keyra hina tölvuna, líklega næstu tvo klukkutímana, til að plotta milljón punkta Poincaré mynd af kerfinu mínu. Það er nefnilega að hegða sér kaótískt og þá verður Poincaré myndin svona fractal-type-shit, þ.e. eftir því sem maður eykur punktafjöldann, eykst nákvæmni myndarinnar því engir tveir punktar hafa sömu hnit, see Figure 1. Guðlaugu finnst þetta bara vera geðveiki, og dæmi bara hver fyrir sig.



Figure 1: Þessa Poincaré mynd tók 23.000 sekúndur að gera og hún var blá í eps. Photoshop er undarlegt.

Ég vona að fólk skilji hve töff þetta er og kunni að meta hvers vegna ég nenni að keyra tölvurnar í yfir dag til að fá þessar myndir.

Ég fékk dót í gær. Rattleback. Það er svona spinningsflokkur sem er bara sáttur við að snúast í eina átt, ef maður snýr honum í hina, þá byrjar hann að rugga og snýst svo bara í hina áttina. Þið eruð vonandi með á nótunum, til nótunum flokksins. Ég efast ekki um að það væri hægt að græða pening með þessu einhvern veginn, því þetta er ótrúlegt í fyrstu, svo omgående allavega.

Jæja, hlakka til að taka hittíngsflokk á Spáni, og á Íslandi. Á endursjónum!

miðvikudagur, maí 24, 2006

Kláraði með stæl!

Jæja, þá er enn einni prófatörninni lokið hjá mér - og hún endaði heldur betur vel! Guðlaugin rúllaði upp munnlega prófinu og fékk 11!!! Geri aðrir betur ;)

Takk fyrir kveðjurnar öll sömul! Mikið er ég nú farin að hlakka til að sjá ykkur... eftir 3 vikur :):):) Og nokkur ykkar bara eftir 10 daga - á Spáni - snilld!

Nú er það bara Svenni greyið sem á eftir að klára, en það er nú bara eitt verkefni, engin próf. Og hann er svo ofsalega áhugasamur að þetta er bara gaman hjá honum. Hann nennir heldur ekki að vera með mér í geðveikinni að þrífa glugga og allt mögulegt sem honum finnst ekki þurfa að þrífa. Ég er nefnilega svona nett klikkuð í þessum málum. Er strax byrjuð að þrífa bakaraofninn og á morgun verður lagst á skeljarnar og reittur arfi í garðinum - YNDISLEGT! Og ég þarf ekki að hugsa um neitt, bara eitthvað skemmtilegt eins og Spánarferðina EFTIR 10 DAGA!!! Minns er orðinn svo spenntur!

mánudagur, maí 22, 2006

Próf, próf, ó próf!

Mikið er nú alltaf glatað að vera í prófum! Ég er nú bara búin að fara í tvö og á eitt eftir - miðað við að þau voru alltaf fimm í háskólanum heima. En þetta er einhvern veginn miklu erfiðara hérna úti. Kannski er maður bara orðinn svona hrikalegur latur í þessu letilofti hérna í Danmörkinni. Fólkinu hérna finnst meira að segja 3 próf vera mikið! Æi, þetta er svo skrítið... Ég á aðalprófið eftir - munnlegt! Gaman, gaman! Á örugglega eftir að vera stressaðri en allt í heiminum, vona bara að ég nái að koma upp einu og einu orði ;)

Prófið í steypunni var algjört rugl! Þar var samsetningin á kennurunum líka Svíi, Þjóðverji og Dani. Ekki gat það nú farið vel... Ég var 2 klst. (50% af tímanum) með fyrstu 30% af prófinu. Og þegar ég áttaði mig á því - eftir að hafa skrifað stanslaust í 2 klst. - varð mín bara ansi stressuð og þá fóru hin 70% fyrir lítið! Ef ég þekki Danina rétt þá hafa þeir kvartað sáran við kennarann yfir þessu ömurlega prófi. Fínt að hafa fólk í málinu.

Er orðin ansi rugluð á svefnleysi og almennri andlegri þreytu svo þetta verður ekki lengra að sinni. Yfir og út!

miðvikudagur, maí 10, 2006

Frábært veður = Próflestur



Auðvitað kom loksins vorið þegar kominn er tími til að lesa fyrir próf... er það ekki alltaf þannig?! En ástæðan fyrir bloggleysi hefur einmitt verið sú að ég hef ekkert að tala um nema stál eða steypu - could it BE any more boring?

En vorið er svo sannarlega komið! Það kom síðastliðinn þriðjudag og þá byrjaði gróðurinn að taka við sér. Núna er svo kominn vænn grænn blær (hversu mörg æ eru í því) og blómstrandi tré úti um allt. Og eins og sjá má eru túlipanarnir í garðinum okkar í góðum fílingi.

En í morgun skilaði ég lokaverkefni í stálinu og ákvað því að taka lærdómsfrían dag í dag, svona til að vera klár í próflesturinn sem hefst á morgun (góð afsökun ekki satt?). Og dagurinn var alveg frábær: ryksugaði, skúraði, þurrkaði af (ok, ég er klikkuð, ég veit það!), fór í hjólatúr út að ströndinni með Svenna, Tóta kom í grill - marineraðar svínahnakkasneiðar og kartöflusalat, setið úti til klukkan átta!, frábær ís og jarðarber - sem nota bene kostuðu 10 kall 1/2 kg!

Fleiri myndir hér!

23 dagar í Spán...

sunnudagur, apríl 30, 2006

Menn með vélsög

Ekki er hægt að vakna við óþægilegri aðstæður en þegar tveir menn með vélsög standa fyrir utan svefnherbergisgluggann hjá manni! Gud! Það gerðist sem sagt í morgun og þeir söguðu niður eplatréð í garðinum okkar!!! Manni hefnist greinilega fyrir að sjá sér ekki fært að taka þátt í "havedag"... Sumir eru bara í skóla og þurfa að læra - halló, það eru að koma próf og verkefnaskil eru á milljón! Nei, nei, Danir þurfa bara sinn 9-5 vinnudag á virkum dögum - helgar og kvöld eru fyrir "hygge"! Craps - ekki veit ég hvernig þeir fara að þessu :oP

þriðjudagur, apríl 25, 2006

25 ára - fínn aldur!



Yngismærin fyllti fjórðungsöld síðastliðinn föstudag. Kærar þakkir fyrir allar kveðjurnar - ykkur var samt öllum boðið í partý, í alvörunni! Þið komið bara næst... En ég fékk líka frábærar afmælisgjafir. Á myndinni er ég í lopapeysu sem Tóta prjónaði og gaf mér - ótrúlega flott! - og er að fara að opna pakka frá Tinnu, Valtý, Pétri og Sollu, sem ég var nýbúin að sækja á pósthúsið. Í pökkunum leyndust rosa flottur hringur og eyrnalokkar með bleikum prinsessusteinum :) Svo voru Sara systir og Helgi búin að gefa mér æðislega flott hálsmen og eyrnalokka. Greinilegt að þeim finnst ég ekki nógu skrautleg ;) Takk fyrir mig!

Á afmæliskvöldinu var okkur ásamt Erling boðið í mat til Önnu Heru og Pawels. Rosa gaman að hitta liðið! Takk fyrir afmælisveisluna ;)

Á laugardagskvöldið var þessi íslenski lambahryggur eldaður - nammi, namm!



Og Tóta fékk loksins páskalambið :)



Svo var bökuð frönsk afmælis-súkkulaðikaka



Namm...



Svo var tekið til við að spila Trivial Pursuit



Og við Tóta vorum "on fire"!



Svenni átti í einhverju basli...



... og tapaði fyrir okkur!!!



Annars voru páskarnir í Svíþjóð líka alveg æðislegir - myndir komnar á myndasíðuna. Þetta var í fjórða skiptið sem ég heimsæki Söru og co. í Stokkhólmi svo núna erum við búum að sjá það helsta í borginni og erum því bara að njóta þess að vera saman. Fannar er alltaf að stækka og þroskast og núna getum við spilað ólsen ólsen tímunum saman og hann notar alls konar "trikk" til að vinna, eins og til dæmis að geyma átturnar þangað til síðast! Hvaðan ætli hann hafi lært það? Svo var ég að fá þær fréttir að hann kemur í "ömmu og afa orlof" til Íslands í júní og því fæ ég að hitta hann fljótt aftur - æði! Viktor breytist náttúrulega enn hraðar en Fannar og er farinn að labba og hlaupa út um allt. Hann er líka farinn að mynda orð og tekur til dæmis upp á því að kalla á bróður sinn! Mjög fyndið að heyra rúmlega eins árs kríli kalla á einhvern, með réttum áherslum og allt!

Jæja, sveiflan bíður... Er búin í prófum 24. maí og við förum til Spánar 3. júní svo ef einhver vill koma í heimsókn og njóta góða veðursins í lok maí... Einnig ef þið þekkið einhvern sem vantar íbúð í Köben í sumar þá er okkar laus frá miðjum júní til loka ágúst og endilega hafið samband: gudlaug_osk@hotmail.com

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Svenni Rokk

Ég er ennþá með suð í eyrunum frá því í gær vegna þess að Anthrax rokka feitt.

Annars er ég núna í tíma í Innovation in Product Development og þetta er að verða frekar þreytt. Ég er alveg til í að þessi kúrs fari að klárast. Það er svo sem nokkuð öruggt vegna þess að lokaskýrslan er due the 3rd of May. Crap! Shite!
Anyway, ég sá albínóa-dádýr í gær, í annað sinn. Ekki þú! (Allavega er það ótrúlega ólíklegt)

I am a doughnut.

miðvikudagur, apríl 12, 2006

Frábær heimsókn!



Ekki er annað hægt að segja að heimsókn Gyðu hafi heppnast mjög vel! Hún var hjá okkur í 5 daga og það var sko ýmislegt sem við náðum að gera:

Miðvikudagur: Verslað í Fisketorvet, út að borða á Italiano.

Fimmtudagur: Hádegismatur og skoðunarferð í DTU, kíkt í miðbæ Lyngby á kaffihús, eldað heima, bjór á skólabarnum í DTU með Kidda.

Föstudagur: Power-shopping í H&M á Strikinu, notið góða veðursins á Strikinu, pizza bökuð heima, undarlegasta partý ever á Öresundskollegíinu, ekki svo frábær bæjarferð, næturstrætó, í rúmið kl. 5.

Laugardagur: Þynnka ekki látin koma í veg fyrir frábæra ferð til Malmö, rölt um miðbæ Malmö, McDonald's, Turning Torso, kaffihús, BÍÓ í Malmö, setið úti að borða á kaffihúsi - undir hitalömpum þó.

Sunnudagur: Bakken, nokkrar salibunur í rússíbana og kolkrabba, út að borða á Reef'n Beef, svakalegur fordrykkur, kengúru-carpaccio, 600 gr nautasteik, ljúffengt kengúrukjöt, gott rauðvín, undarlegir eftirréttir.

Mánudagur: Danskir vinir Gyðu, sem hún kynntist í Kanada og hitti fyrir ótrúlega tilviljun í strætó og eru að flytja inn á kollegíið okkar, komu í hádegismat, Svenni bakaði köku, Gyða og Guðlaug hjóluðu út í búð, kíktum í síðustu ferð á Strikið í frábæru veðri, kaffihús, Gyða farin :o(

Takk kærlega, elsku Gyða okkar, fyrir heimsóknina! Myndir hér.

Á morgun förum við til Stokkhólms og verðum þar fram yfir páska, yndislegt! Gleðilega páska, kæru vinir, og hafið það gott!

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Kannski kominn tími á blogg

Já, lífið gengur sinn vanagang hér í 2950, eins og Tóta segir - hún er undarlega hrifin af póstnúmerum ;o) Við höfum reyndar haft gesti í mat og hitt eina mjög góða vinkonu mína og bumbuna hennar. Á þriðjudag í síðustu viku buðum við Tóta Sigurði, prófessor okkar úr HÍ, í mat og Dísa skvísa var svo spennt að koma líka að hún fékk það. Sigurður er hér í DTU í rannsóknarleyfi í 2 mánuði svo okkur fannst tilvalið að bjóða honum og sýna honum hvernig við stúdentarnir höfum það. Mjög skemmtilegt kvöld þar sem mikið var spjallað.

Síðastliðinn fimmtudag hittum við Gróu vinkonu og bumbuna hennar niðri í miðbæ. Hún kom þá óvænt í stutta heimsókn og tók heilan dag frá fyrir okkur Tótu. Það var sko alveg yndislegt að hitta hana! Við fórum í nokkrar búðir, á kaffihús og út að borða og kjöftuðum mjög mikið - enda langur tíma að vinna upp! Við náðum því þó engan veginn og hlökkum við bara til að hittast aftur í sumar þegar litli bumbubúinn kemur í heiminn.

Helgin var svo tekin í rólegheit og lærdóm. Við Svenni elduðum okkur dýrindis andabringur á laugardagskvöldið - mmm... Pétur, þær voru nammi! og kíktum í ísbílinn. Sumarið er líka að rembast við að koma svo við fórum nú barasta í hjólatúr, sko okkur!

Í kvöld eigum við svo von á Önnu Heru og Pawel. Þau ætla að treysta sér að koma í sveitina og þiggja mat hjá okkur. Það verður eflaust mikið talað og hlegið í kvöld, þori að veðja því! Og á morgun kemur svo hún Gyða skvísa - er sko búin að bíða í nokkra mánuði eftir henni! Framundan er því algjör quality tími hjá okkur skvísunum... Ég lofa að koma með myndir eftir helgina.

Svo er það Stokkhólmur eftir viku!!!

þriðjudagur, mars 28, 2006

Afmæli, árshátíð, heimsóknir...

gæti bara ekki hljómað betur! Gróa vinkona á afmæli í dag - innilega til hamingju, snúllan mín! Og svo er hún nú barasta að koma til Köben á morgun!!! Mikið hlakka ég nú til að sjá hana og kannski kíkja út að borða ;) Og svo kemur Gyða eftir viku!

Um helgina var árshátíð Íslendinga í DTU haldin í Jónshúsi. Hún var ofsalega vel heppnuð og stelpurnar í stjórninni stóðu sig eins og hetjur við að dekka borð, bera fram matinn og að sjálfsögðu að þrífa. Klapp fyrir þeim! Eftir matinn var svo haldið á hinn vinsæla stað Pilegården þar sem Íslendingarnir tóku yfir staðinn með tilheyrandi ærslagangi, látum og "uppsölum"... nefni engin nöfn. En við skemmtum okkur allavega konunglega þó að Dönunum hafi ekkert litist á þessa brjálæðinga!

Svo er það 5 manna matarboð í kvöld!

miðvikudagur, mars 22, 2006

Búið að vera nóg að gera!

Síðastliðið föstudagskvöld var okkur Svenna boðið út að borða. Það var "afi í Danmörku" sem bauð. Hann er alveg yndislegur eldri danskur maður sem var giftur frænku hans Svenna. Gott að vera loksins búin að hitta hann, en hann býr nú bara í næsta bæjarhluta.

Á laugardaginn hitti ég Völu, sem býr í Lundi, á kaffihúsi niðri í bæ. Hún ákvað þá að skella sér yfir sundið og hafði samband við mig! Rosalega gaman að hitta skvísuna - við höfðum sko nóg að tala um enda ansi langt síðan við hittumst síðast. Nú vonum við bara að við Svenni getum fundið smugu frá lærdómi til að geta skellt okkur í heimsókn til Lundar.

Á laugardagskvöldið skelltum við okkur svo á Spiseloppen í Christianiu með Tótu, Dísu og Hannesi. Ekkert okkar hafði komið þarna áður svo við vissum ekkert hvert við vorum að fara. Og þeir sem hafa komið þarna vita að aðkoman er ekki eins og á öðrum álíka fínum veitingastöðum! Við gengum upp útkrotaðan og ógeðslega "creepy" stigagang og fundum þar þennan fína veitingastað á 3. hæð. Maturinn var MJÖG góður!

Og helgin var líka vel nýtt í lærdóm þar sem verkefnaskil voru í gær. Alltaf ljúft að skila af sér verkefnum eða vera búin í prófum. Og við Tóta gerðum okkur því glaðan dag og fórum í Fisketorvet í dag - fyrsta skipti hjá mér! Við versluðum örlítið og svona, voða gaman.

Svo er Gyða gella búin að kaupa sér flugmiða til okkar og verður hjá okkur 5.-10. apríl!!! Úúúúúú... gaman, gaman, gaman!

föstudagur, mars 17, 2006

Afmæli...

Elsku Nína tengdó á STÓRafmæli í dag. Innilega til hamingju!



Einnig vil ég óska Andrési til hamingju með aldarfjórðunginn í dag og Gunna síðastliðinn miðvikudag, en þá varð Siggi "litli" frændi 28 ára.

Innilegar hamingjuóskir til afmælisbarna vikunnar!

mánudagur, mars 13, 2006

The Cardigans



Tónleikar með The Cardigans í gærkvöldi. Þeir voru í einu orði sagt: geggjaðir! - Nina Persson er bara töffari og verður bara betri og betri söngkona, gítarleikarinn var í silfurlitum skóm, voru með mann í því að stilla gítara alla tónleikana, fengum frábær sæti, æðisleg tónlist, tvöfalt uppklapp. Við lifum lengi á þessu...

þriðjudagur, mars 07, 2006

Læri, læri, tækifæri...

Geri lítið annað þessa dagana en að reyna að læra. Helgin var til dæmis gott dæmi um lærdómshelgi; lærði lítið, þreif íbúðina, fór í bíó og í pizzu... hvar endar þetta?

En já, fórum í bíó með Rafnari, Sólveigu og Viðari á laugardaginn á myndina Syriana. Þetta var vægast sagt mjög flókin mynd og ekki var það betra að myndin var að hálfu á arabísku (eða álíka) og með dönskum texta! Og þar sem innihald myndarinnar er frekar flókið, og dönskuorðaforðinn ekki alveg sá besti, var ég fljót að týnast... og Viðar að sofna ;o) En það var hins vegar mjög gaman að hitta þau öll og erum við staðráðin í að bjóða þeim í heimsókn í sveitina fljótlega.

Veturinn er endalaus hér núna. Í morgun var 10 gráðu frost og á morgun og hinn spáir enn meiri snjókomu og roki í þokkabót, sem er mjög sjaldgæft hér í Lognmörku! Hér hefur verið snjór upp á hvern einasta dag síðan við komum út aftur eftir jólafríið og má segja að við séum alveg að fá nóg af honum, og hvað þá Danirnar sem eru farnir að gera þetta að fréttaefni. Ef þið eruð farin að sakna snjósins á Íslandi þá skellið þið ykkur bara í heimsókn!

Framundan: Cardigans 12. mars, Christiania 17. eða 18. mars, árshátíð FÍVDTU 25. mars, Stokkhólmur 13. - 17. apríl, stórafmæli 21. apríl...

fimmtudagur, mars 02, 2006

Eru Danir hræddir vid snjó?

Hér í Danaríki er enn vetur. Ekkert bólar á vorinu sem ég var viss um ad kæmi strax 1. mars. Í gærmorgun var búid ad snjóa ørlítid og eins og Dønum sæmir voru their mættir út kl. 06:00, med skóflurnar, grøfurnar, sandinn og saltid, til ad rydja thessum heilu 2cm af snjó af gøtunum. En í okkar húsarekka var enginn nógu duglegur til ad fara út ad moka ádur en fólk fór í skólann. Thar med nenntu ruslakarlarnir ekki ad tæma tunnurnar í okkar rekka! Their láta sko ekki bjóda sér ad ganga í 2cm thykku snjólagi. Ó, nei!

Mér finnst nú alveg merkilegt ad hér úti hefur líklega snjóad meira í vetur en undanfarin ár á Íslandi, en samt høfum vid varla thurft ad snerta snjó. Danirnar skafa gøturnar um leid og byrjar ad snjóa og salta eins og their fái borgad fyrir thad! Enda fer fólk í vinnu og skóla á hjólunum sínum allt árid um kring - og oftast ekki einu sinni med húfu og vettlinga, í skítakulda! Vid Íslendingar erum greinilega ekki their víkingar sem vid teljum okkur vera...

Ad lokum vil ég óska tengdapabba og Gudmundi Óskari innilega til hamingju med afmælid í dag og Ásdísi, litlu skottu, til hamingju med afmælid í gær! Húrra!

mánudagur, febrúar 27, 2006

Jafnvel skrýtnari draumur

Ég er búinn að spila Halo CE ansi mikið undanfarna daga. Ég er farinn að geta spilað á Heroic level sem er bara ansi gott. Fyrir þá sem ekki þekkja það þá verður kannski ekki jafngott að skilja þennan draum sem ég ætla að lýsa.
Ég var sumsé staddur á Halo, sem er svona heimur sem er byggður innan á hring, hence nafnið Halo. Það er sumsé hægt að labba um og keyra á innra yfirborði Halo. Ég var búinn að skjóta ógrynni af geimverum og var svona u.þ.b. að klára borðið. Félagar mínir voru að hlaupa upp í Pelican flaugarnar og á leið frá yfirborðinu. Þeir voru sumsé að flýja, það voru nefnilega Hunterar á hælunum á þeim, see figure 1:



Figure 1: Gaurarnir sem félagarnir eru réttilega hræddir við.

Nú er ég orðinn svo mikil Halo hetja að ég er ekki lengur hræddur við Huntera vegna þess að ég kann trikkið til að drepa þá. Þeir eru nefnilega rosalega vel brynvarðir en þeir eru með svona "weak spot", see figure 2:



Figure 2: Vonandi sést í magann á honum, það er nefnilega "the weak spot"

Trikkið er sumsé að skjóta þá í magann eða bakið með skammbyssu eða riffli. Þá drepast þeir strax. Ég beið því bara eftir að þeir gæfu færi á sér og svo myndi ég bara skjóta þá. Bang! Búið! Þetta var samt eitthvað að klikka og þá tók draumurinn að breytast yfir í óútskýranleika.
Það sem gerðist svo var frekar undarlegt vegna þess að annar hunterinn; þeir koma sumsé alltaf í pörum; fór að skipta um föt...
Hann var sumsé með ferðatösku sem virtist vera ú latex-ish efni. Hann fór sumsé út í horn að skipta um búning á meðan hinn var allur í því að reyna að drepa mig með þungum höggum með skildinum sínum. Síðan tók ég eftir því að Hildur Björk frænka, systir Halldórs Th var að koma út úr herberginu, með sína ferðatösku. (Það var samt ekkert herbergi þarna, ég er á Halo)
Einhvern veginn tókst mér samt að fá Hunterinn til að hætta að reyna að drepa mig með því að fara að gera grín að bróður hans, hvað það væri asnalegt að sjá svona tröll með svona litla tösku. Hún var sumsé á stærð við flugfreyjutösku.
Þegar þessu var lokið þá langaði mig samt aðeins að drepa Hunterana og fór því að leita að rocket launcher sem ég hafði séð áður en hann var farinn svo að ég nennti eiginlega ekkert að reyna að drepa þá enda voru þeir eiginlega búnir að missa áhugann, gengu bara burt í rólegheitum, einn þeirra með asnalega litla ferðatösku og hinn með svaðalegasta morðtól í öllu arsenalinu í Halo.

sunnudagur, febrúar 26, 2006

Hann á afmæli í dag...

hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Viktor, hann á afmæli í dag!



Elsku, litli, sætasti frændi minn er eins árs í dag! Jibbí!!! Til hamingju með daginn, elsku Sara systir, Helgi Þór, Fannar Már og Viktor Snær ;)

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Á Spán' er gott að djamma og djúsa... lalala...

Ég vildi bara sýna ykkur hvert við erum að fara í sumarfrí - kíkið hér!

Verðum í rétt rúma viku í byrjun júní með Hörpu, Begga, Brynhildi og Haffa. Þetta er þá helmingurinn af vinahópnum góða; vantar Tótu, Jóhönnu og Palla Ameríkubúa, Sigrúnu, Erling og Brynhildi Ingu. Vildi nú óska þess að við gætum verið öll, en við munum nú öll hittast í sumar og taka kannski eitt stykki útilegu - þær klikka ekki!

Annars er lærdómshelgi framundan, ekkert krassandi í þetta skiptið. Góða helgi, kæru vinir!

miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Á réttri hillu?

You scored as Mathematics. You should be a Math major! Like Pythagoras, you are analytical, rational, and when are always ready to tackle the problem head-on!

Mathematics

83%

Engineering

67%

Philosophy

58%

Chemistry

42%

Psychology

42%

Biology

33%

English

33%

Journalism

33%

Linguistics

25%

Dance

17%

Sociology

17%

Anthropology

17%

Theater

8%

Art

0%

What is your Perfect Major?
created with QuizFarm.com

Ef stærðfræðiskorin í HÍ hefði haft betri kennara... þá hver veit! Það er alveg á hreinu að mér finnst gaman að reikna og í burðarþolsfræði er líklega mest um útreikninga af öllum verkfræðigreinunum. Svo þetta passar kannski bara!

Myndir...

úr vísindaferðinni er komnar á myndasíðu FÍVDTU. Þá hefst keppnin "Hver þekkir flest andlit á myndunum?" - góða skemmtun!

mánudagur, febrúar 20, 2006

Viðburðarík helgi að baki

Vísindaferðin á föstudaginn var mjög vel heppnuð. Við fengum ýmsar gagnlegar upplýsingar um Stéttarfélag verkfræðinga - veitti ekki af! Og að sjálfsögðu voru veitingar í föstu og fljótandi formi ;) Að lokinni vísindaferð var hópnum smalað á Öresundskollegíið þar sem haldið var alveg frábært partý; ýmis íslensk partýtónlist hljómaði og meðal annars nýja Eurovision-lagið okkar! Ég sofnaði því með það lag á heilanum aðfaranótt laugardags.

Á laugardagskvöldið bauð Dísa okkur í Eurovision-partý. Rosa gaman að hittast og horfa saman á keppnina. Við vorum mjög sátt við Silvíu Nótt, hún er alveg frábær týpa, en mér fannst Regína alveg svakalega góð. Kannski var ég bara búin að fá nóg af "Til hamingju Ísland, með að ég fæddist hér..." sem ómaði í hausnum á mér nóttina áður. En það er ekki spurning að það verður spennandi og gaman að horfa á Eurovision í maí!

Í gærkvöldi komu Tóta, Helgi (bróðir Tótu) og Sigga (konan hans) í mat til okkar. Það var ansi huggulegt að fá þau til okkar í alvöru sunnudagsmat með ís í desert - gæti ekki verið betra! Við ætluðum auðvitað að bjóða þeim til okkar fyrir löngu, en þau skutluðu okkur út um allt fyrstu dagana okkar hér í Köben.

Og í gærkvöldi var einnig ákveðið hvar sumarfríið verður tekið í sumar! Undirbúningur hefur staðið yfir í nokkrar vikur, en Haffi, Brynhildur, Harpa og Beggi hafa haldið vikulega fundi um stöðu mála og legið á netinu í leit að húsum fyrir okkur. Við munum leigja okkur hús á Spáni - við Svenni verðum í eina viku en hin ætla að vera í tvær. Þetta er algjört draumahús; með einkasundlaug uppi í fjöllum! Okkur á eftir að líða eins og kvikmyndastjörnum liggjandi við sundlaugina með geggjað útsýni! Spenna, spenna, spenna...

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

Afmæli og langþráð vísó!

Pabbi gamli á afmæli í dag og óskum við honum innilega til hamingju með það ;)

Á morgun er okkur boðið í vísindaferð af Stéttarfélagi verkfræðinga á Íslandi. Úff! Langt síðan við höfum farið í eina slíka. Maður var orðinn allt of góðu vanur heima á Íslandi. Að ferðinni lokinni verður haldið partý á aðalpartýkollegíinu; Öresundskollegíinu. Stuð, stuð, stuð! Vonandi koma einhverjar myndir...

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Fjör á þorrablóti

Við skemmtum okkur svona líka vel í gærkvöldi! Byrjuðum kvöldið í eldhúsinu hjá Tótu með því að panta pizzu, drekka rauðvín og Breezer, horfa á danska Eurovision, spjalla og hlæja mjög mikið! Héldum svo á Þorrablótsballið þar sem var dansað og sungið fram á rauða nótt. Við misstum reyndar af fjöldasöng með Valgeiri Guðjóns. en hljómsveitin stóð sig vel. Myndirnar sýna betur hvað það var ofsalega gaman!

P.s. Einn sjúkrabíll var kallaður til í þetta skiptið - ekki vegna slagsmála þó.

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Ekki svo stuttur draumur

Mig dreymdi í nótt ad mamma og pabbi væru í heimsókn hjá okkur. Og thad var ekkert mál ad vid Svenni færum í skólann thví mamma og pabbi gátu haft bílinn á medan! Sko, gamla Lancerinn okkar, buhu. Svo dreymdi mig ad ég væri á leidinni í bústadinn okkar í Thrastarskóginum. Frábær draumur alveg hreint, en thad var ekkert svo gaman ad vakna og thurfa ad mæta í skólann. Thetta er thad sem mig dreymir um... eitthvad adeins meira vit í thessu heldur en draumunum hans Svenna, huhummm!

Erum búin ad fjárfesta í midum á tónleika med sænsku grúppunni The Cardigans, sem haldnir verda á Vega 12. mars. Erum búin ad vera ad melta thad ansi lengi hvort vid ættum ad tíma thví ad fara - en ákvádum ad fyrst vid búum hér í stórborginni thá verdum vid ad haga okkur thannig ;)

Fyrst er thad thó hid stórkostlega thorrablót Íslendingafélagsins haldid í Tívolí á laugardaginn. Thad verdur eflaust mikid "fjør" og vonandi tharf ekki ad kalla til sjúkrabíla í thetta skiptid!

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Enn kemur kerfið hér á óvart!

Eins og sönnum námsmönnum sæmir biðum við með óþreyju eftir námslánunum okkar. Á mánudaginn var svo kominn eindagi á húsaleiguna og þá átti hið kæra, kæra mastercard að koma til aðstoðar - eins og svo oft áður. Leið okkar lá því í útibú Danske Bank hér í skólanum. Þegar kom að því að greiða reikninginn sagði gjaldkerinn: "Er þetta íslenskt kort? Já, við tökum ekki svoleiðis hér. Þið verðið að fara niður í Lyngby." Þjónustan í hámarki! Hver hefur heyrt um að BANKI taki ekki hin og þessi kreditkortin?

þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Funky, stuttur draumur

Ég var að vakna. Enginn skóli á tirsdögum. Mig var að dreyma að Gróa, soon to be milf, og kærastinn hennar, ekki Bjöggi heldur réttarlæknirinn í CSI New York voru í heimsókn hjá okkur. Ég var að fara að raka mig með minni philips og Hill Harper spurði mig hvort hann mætti prófa. Ég leyfði honum það, sá að skeggið fór af hægri vanga hans (the tested area) og svo sýndi ég Gróu á hægri vanga mér og hún sagði, já þetta virkar bara vel.
Allan tímann var ég samt að bölva mönnum með skeggrót í hljóði og var alveg sannfærður um að Gróa sæi ekki neitt discontinuity milli vangans og restarinnnar af andlitinu.
Þegar ég vaknaði fór ég bara að klippa nefhárin, sem virðast ekkert vera jafnilla dreifð. Af hverju eru nefhár ekki svona macho-look-giving-stuff? Þá gæti ég verið ultra kúl.

laugardagur, febrúar 04, 2006

Úff! Að hjóla í 7 stiga frosti...

er bara kalt!



Við fórum sem sagt hjólandi til Vedbæk í dag og tókum lestina til Helsingør - okkur langaði að prófa að fara í "hina áttina". Og ekki urðum við fyrir vonbrigðum! Skoðuðum Kronborg kastala og gamla bæinn, sem er mjög gamall og huggulegur. Allt út í svokölluðum "bindingsværkshuse". Eins og okkar er von og vísa kláraðist batteríið í myndavélinni mjög fljótlega. Til að koma í veg fyrir svoleiðis klúður eigum við aukabatterí en það var náttúrulega óhlaðið - typical! Jæja, enduðum á indverskum veitingastað og fengum fíneríis mat. Vorum svo að koma hjólandi heim í 7 stiga frosti og þoku!!! Brrrr...

mánudagur, janúar 30, 2006

Óvænt og vænt heimsókn!

Frábær helgi að baki! Hún byrjaði faktískt á miðvikudaginn um tvöleytið þegar dyrabjöllunni okkar var hringt. Ég opnaði dyrnar og fyrir utan stóð Sara systir með litla ferðatösku!!! Já, þessu átti ég ekki von á! Ég var svo hrikalega hissa og glöð að ég fór í algjört panik! Svenni hélt að nágrannarnir væru komnir til að þakka honum fyrir að moka snjóinn fyrir utan. Jæja, Sara var þá bara sett í að elda súpu fyrir kvöldið, sem við ætluðum að hafa tilbúna þegar mamma og pabbi kæmu. Við Svenni bjuggum um rúm fyrir alla gestina og gerðum klárt. Alveg frábært að Sara kom bara líka!

Svo fórum við systurnar og tókum á móti mömmu og pabba á Kastrup. Það var svo æðislegt að hitta þau aftur - fyrsta skipti á nýja árinu!!! Var nú bara að átta mig á því núna! Dögunum eyddum við svo í búðum, í göngutúrum, á kaffihúsum - nutum þess að vera saman. Á laugardagskvöld buðu mamma og pabbi út að borða á Det Lille Apotek, æðislega huggulegur, eldgamall veitingastaður við Store Kannikestræde. Við fengum öll fínan mat og vorum mjög ánægð með kvöldið. Í gærmorgun kvaddist svo litla fjölskyldan og Sara hélt til strákanna sinna í Stokkhólmi og mamma og pabbi til Íslands. Það var nú rosa erfiður dagur í gær þegar allt var orðið tómt í kotinu hjá okkur. En í dag byrjaði skólinn aftur og þá er um nóg að snúast.

Myndir eru komnar á netið!

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Ma og pa koma á morgun!

Vikufríið okkar er búið að vera svo rólegt og einmanalegt að við eigum örugglega eftir að éta þau þegar þau koma! Ekki það að rólegheitin séu slæm en við erum líka búin að vera að bíða eftir heimsókninni. Það verður alveg æðislegt að fá þau og munum við fá okkur góðan mat, fara í göngutúra, versla kannski pínu... Ofsalega ætlum við að hafa það gott!

Hafið það sömuleiðis gott, kæru vinir!

mánudagur, janúar 23, 2006

Til hamingju með afmælið!


Elsku stóra systir mín á afmæli í dag. Við óskum henni innilega til hamingju með það.

laugardagur, janúar 21, 2006

Hmmm...



Fræðatröll


Þú ert vanafastur, tilfinningaríkur innipúki.

Fræðatröllið er forvitið að eðlisfari og er köllun þess í lífinu að komast að sannleikanum. Fræðatröll má gjarnan finna í dimmum skúmaskotum bókasafna þar sem þau rykfalla og sussa á aðra gesti safnsins. Fræðatröllið klæðist gjarnan flaueli - nema þegar það er í tísku. Hringitónninn í síma þess er stefið úr þættinum Nýjasta tækni og vísindi, sem það grætur stöðugt að sé ekki lengur á dagskrá.



Hvaða tröll ert þú?

Já, kemur kannski ekki á óvart!

Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna. Góða helgi!

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Ammaissing!

Ég er farinn ad yngjast. Ég er lika farinn ad blogga á unix tølvu, sem er ekki svo frábært. Annars er ástæda thess ad ág er farinn ad yngjast sú ad ég er farinn ad stunda tølvuleik sem nefnist Halo Combat Evolved. Thad er svo tøff leikur ad thad er bara grín. Eg fann hann á netinu fyrir løngu sídan en var alltaf í vandrædum med ad setja hann upp á tølvunni. Thetta er svona 1.p skotleikur thar sem madur getur keyrt um í bilum óvinarins, flogid um í hans flugtækjum og nátturulega splatterad altmuligt.
Vid fórum í sædýrasafn um helgina, thad var gaman og alls ekki kúl. Vid vorum eina fólkid sem borgadi n*fullordinsgjald. Thar var svona (hey dude!)-skjaldbaka, the black-tipped reef shark(discovery borgar sig) og hellingur af piranha-fiskum. Svo sáum vid Ferrari 360 Spyder, og seinna bordudum vid vøfflur med rjóma, nutella og hindberjasultuføtum.
Rafnar og Sólveig, hans ektakvinna, budu okkur í mat á føstudaginn í thetta fína carbonara med nægu beikoni. Thar gátum vid talad, samt mismikid, eins og vid var ad búast. Semsagt, gott.

Hvernig stødvar madur keyrslu í unix ef forritid er ekki í console?

þriðjudagur, janúar 10, 2006

Mamma á afmæli í dag!

Til hamingju med daginn, elsku mamma! Afmælistertan bídur thín thegar thú kemur ;o)

laugardagur, janúar 07, 2006

Myndir frá Íslandi

eru komnar á myndasíðuna. Yndislegur tíminn á Íslandi en allt of stuttur. Það var ofsalega tómlegt að koma til baka, en þó gott að komast heim til sín - blendnar tilfinningar!

Annars hefur vikan verið þokkalega viðburðarík svo við gátum aðeins gleymt okkur. Við erum núna saman í kúrsi og erum að vinna eitt stórt stærðfræðiverkefni allar þrjár vikurnar. Við erum í hópi með Rafnari sem er að taka master í stærðfræði. Kennarinn var svo frábær að hann bannaði okkur að vinna í verkefninu um helgina, fannst við eiga að taka okkur frí! Hann vill nefnilega meina að maður þarf að vinna OG hvílast inn á milli. Eitthvað sem við Íslendingarnir erum ekki vön!!!

Jæja, en á miðvikudag kom Pétur í óvænta en stutta heimsókn. Í þetta sinn var hann hjá okkur í 10 klst. og sló metið frá því síðast sem var 8 klst. En hann náði að borða með okkur og svo höfðum við bíó með íslensku nammi. Það var mjög huggulegt að fá hann til okkar og við eigum von á að komi nokkrum sinnum í vor og hlökkum við að sjálfsögðu mikið til að fá hann aftur.

Á fimmtudaginn átti svo Rafnar afmæli. Í tilefni dagsins fórum við út að borða á Italiano eftir að hafa verið gríðarlega dugleg að vinna í verkefninu niðri í skóla. Góður endir á góðum degi!

Nú er hvíldarhelgi hjá okkur og verður ekki meira gert en í mesta lagi að fara í búðina. Annars verður kannski púslað, horft á video, lesið, leyst Sudoku... "sweet"! Njótið helgarinnar kæru vinir!

sunnudagur, janúar 01, 2006

Gleðilegt nýtt ár!

Við erum komin aftur til Danmerkur eftir yndislega dvöl á Íslandi. Þið fáið ferðasöguna og myndir seinna í vikunni. Skólinn byrjar klukkan níu í fyrramálið og verður nóg að gera. Gaman, gaman!