þriðjudagur, mars 07, 2006

Læri, læri, tækifæri...

Geri lítið annað þessa dagana en að reyna að læra. Helgin var til dæmis gott dæmi um lærdómshelgi; lærði lítið, þreif íbúðina, fór í bíó og í pizzu... hvar endar þetta?

En já, fórum í bíó með Rafnari, Sólveigu og Viðari á laugardaginn á myndina Syriana. Þetta var vægast sagt mjög flókin mynd og ekki var það betra að myndin var að hálfu á arabísku (eða álíka) og með dönskum texta! Og þar sem innihald myndarinnar er frekar flókið, og dönskuorðaforðinn ekki alveg sá besti, var ég fljót að týnast... og Viðar að sofna ;o) En það var hins vegar mjög gaman að hitta þau öll og erum við staðráðin í að bjóða þeim í heimsókn í sveitina fljótlega.

Veturinn er endalaus hér núna. Í morgun var 10 gráðu frost og á morgun og hinn spáir enn meiri snjókomu og roki í þokkabót, sem er mjög sjaldgæft hér í Lognmörku! Hér hefur verið snjór upp á hvern einasta dag síðan við komum út aftur eftir jólafríið og má segja að við séum alveg að fá nóg af honum, og hvað þá Danirnar sem eru farnir að gera þetta að fréttaefni. Ef þið eruð farin að sakna snjósins á Íslandi þá skellið þið ykkur bara í heimsókn!

Framundan: Cardigans 12. mars, Christiania 17. eða 18. mars, árshátíð FÍVDTU 25. mars, Stokkhólmur 13. - 17. apríl, stórafmæli 21. apríl...

5 ummæli:

Tóta sagði...

Og hvenær verður svo gefinn út óskalisti - eða verður hann bara með í boðskortinu eins og dönum sæmir!?!

Dísa Rós sagði...

Búin að panta borð á Spiseloppen í Christianiu þann 18.mars klukkan 19:00 :)

Guðlaug sagði...

Flott, Dísa skvísa! Takk fyrir það - hlakka til ;o)

Tóta sagði...

Feis! Feis! Feis! til baka!

Tóta sem er ad fara á Spiseloppen;)

Guðlaug sagði...

Hah! Góð Tóta ;o)