
Ekki er annað hægt að segja að heimsókn Gyðu hafi heppnast mjög vel! Hún var hjá okkur í 5 daga og það var sko ýmislegt sem við náðum að gera:
Miðvikudagur: Verslað í Fisketorvet, út að borða á Italiano.
Fimmtudagur: Hádegismatur og skoðunarferð í DTU, kíkt í miðbæ Lyngby á kaffihús, eldað heima, bjór á skólabarnum í DTU með Kidda.
Föstudagur: Power-shopping í H&M á Strikinu, notið góða veðursins á Strikinu, pizza bökuð heima, undarlegasta partý ever á Öresundskollegíinu, ekki svo frábær bæjarferð, næturstrætó, í rúmið kl. 5.
Laugardagur: Þynnka ekki látin koma í veg fyrir frábæra ferð til Malmö, rölt um miðbæ Malmö, McDonald's, Turning Torso, kaffihús, BÍÓ í Malmö, setið úti að borða á kaffihúsi - undir hitalömpum þó.
Sunnudagur: Bakken, nokkrar salibunur í rússíbana og kolkrabba, út að borða á Reef'n Beef, svakalegur fordrykkur, kengúru-carpaccio, 600 gr nautasteik, ljúffengt kengúrukjöt, gott rauðvín, undarlegir eftirréttir.
Mánudagur: Danskir vinir Gyðu, sem hún kynntist í Kanada og hitti fyrir ótrúlega tilviljun í strætó og eru að flytja inn á kollegíið okkar, komu í hádegismat, Svenni bakaði köku, Gyða og Guðlaug hjóluðu út í búð, kíktum í síðustu ferð á Strikið í frábæru veðri, kaffihús, Gyða farin :o(
Takk kærlega, elsku Gyða okkar, fyrir heimsóknina! Myndir hér.
Á morgun förum við til Stokkhólms og verðum þar fram yfir páska, yndislegt! Gleðilega páska, kæru vinir, og hafið það gott!
3 ummæli:
Takk fyrir mig dúllurnar mínar! Þetta var yndislegt :) Hlakka til að fá ykkur heim í sumar!
WHAT!! Foru thid til Malmø og forud a Mcdonalds en ekki Subway?!
Thetta hafa samt verid skemmtilegir dagar hja ykkur:)
Hehe :D Við löbbuðum framhjá Subway og okkur langaði mikið - en þynnkan náði yfirhöndinni og kallaði á djúpsteiktar franskar!!!
Skrifa ummæli