laugardagur, febrúar 04, 2006

Úff! Að hjóla í 7 stiga frosti...

er bara kalt!



Við fórum sem sagt hjólandi til Vedbæk í dag og tókum lestina til Helsingør - okkur langaði að prófa að fara í "hina áttina". Og ekki urðum við fyrir vonbrigðum! Skoðuðum Kronborg kastala og gamla bæinn, sem er mjög gamall og huggulegur. Allt út í svokölluðum "bindingsværkshuse". Eins og okkar er von og vísa kláraðist batteríið í myndavélinni mjög fljótlega. Til að koma í veg fyrir svoleiðis klúður eigum við aukabatterí en það var náttúrulega óhlaðið - typical! Jæja, enduðum á indverskum veitingastað og fengum fíneríis mat. Vorum svo að koma hjólandi heim í 7 stiga frosti og þoku!!! Brrrr...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kuldinn kom til okkar í Pittsburgh í kvöld ... ætli það fari þá ekki að hlýna hjá ykkur!