Veðrið leikur við okkur hérna í Bergen og við njótum þess að vera úti alla daga. Síðastliðinn sunnudag var haldin 17.júní hátíð á vegum Íslendingafélagsins. Við skelltum okkur með einn lítinn fána, hlustuðum á afa syngja með sönghópnum, fengum SS-pylsur, harðfisk, flatkökur með hangikjöti og kleinur, og hittum og spjölluðum við fólk á okkar eigin tungumáli. Við teljum okkur vera nokkuð brött í að tala og skilja norskuna, en Svenni fær ítrekað hrós frá vinnufélögum og fleirum. Flott hjá honum!
fimmtudagur, júní 20, 2013
laugardagur, júní 08, 2013
Nýja heimilið okkar
Þá erum við litla fjölskyldan búin að vera alveg á haus að koma okkur fyrir og það hefur gengið vel. Það tók ekki nema viku að klára að taka upp úr síðustu kössunum og kaupa þau húsgögn sem okkur vantaði. Við reynum að nýta allt skápapláss sem er fyrir í íbúðinni, þar sem hún er ekki nema 70 fermetrar, svo við fyllum hana ekki af húsgögnum. Okkur finnst við ekki hafa minna pláss en á Kristnibrautinni sem var um 100 fermetrar, svo allt snýst þetta um að nýta plássið sem best og ekki "overload-a".
Við erum mjög ánægð með hvernig íbúðin er skipulögð og umhverfið er alveg yndislegt. Hér fyrir utan er leikvöllur sem fyllist af börnum seinnipart dags og eru foreldrarnir úti að spjalla á meðan börnin leika. Nágrannarnir eru líka rosalega fínir, allir tilbúnir að aðstoða og hjálpa svo við verðum fljót að kynnast öllum hér. Tveir af pöbbunum í húsinu var til dæmis að horfa á fótboltaleik saman um daginn svo þetta er voðalega "homie".
Svenni byrjaði í vinnunni síðastliðinn mánudag og fer á hjólinu í vinnuna, sem tekur ca. 15 mínútur aðra leið. Hann segir þetta lofa góðu og er strax búinn að fara á fyrsta vinnudjammið, en í gær fór hann niður í bæ þar sem haldið var "lønningskveld" á vegum starfsmannafélagsins og fyrirpartý hjá einum í deildinni hans. Það er mikið af ungu fólki í fyrirtækinu og meðalaldur um 35 ár, svo Svenni er í eldri kantinum.
Ég og strákarnir erum því búin að vera heima þessa vikuna að finna út hvaða rútína hentar okkur best. Strákarnir hafa jú ólíkar þarfir og Siggi hefur minnst á hvað hann sakni leikskólans heima. Pínu sárt að vita til þess en ég reyni að hafa ofan af fyrir honum með því að leika úti í garðinum eða á leikvellinum okkar. Svo höfum við farið í tvo könnunarleiðangra hér niður í hverfið fyrir neðan og fundið nokkra vænlega leikvelli. Svo fann ég líka eitthvað sem kallast "Åpen barnehage" sem er eitthvað sem líkist mömmumorgnum heima, en er fyrir foreldra sem eru heima með börn. Það eru nokkrir svona opnir leikskólar hérna í Bergen og einn þeirra er einungis í 3km fjarlægð frá okkur. Þar er opið 3 daga í viku klukkan 9-15. Við kíktum á þetta á fimmtudaginn og okkur leist vel á. Fín aðstaða með fullt af leikföngum, lokaður garður fyrir aftan hús svo Gunni getur sofið úti í vagninum sínum, samvera kl. 11 með söng, hádegismatur þar sem borðað er heimasmurt nesti, og svo frjáls leikur. Siggi var mjög ánægður með þetta og vill endilega fara aftur á mánudaginn :)
| Kveðjustund í Maríuborg. |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)