mánudagur, október 31, 2005

Licensmanden og enn eitt klukkið!

Um tólfleytið í gær var ég í rólegheitum, á náttfötunum ennþá, að krydda kjúkling. Þá hringdi dyrabjallan. Ég, eins og eðlilegt er, fór til dyra. Var að vona að þetta væri ekki einhver nágranni þar sem ég var á náttfötunum. Nei, þetta var ekki nágranni, þar var ég heppin. En var ég svo heppin, ónei! Þetta var hinn alræmdi "licensmand" frá DR (danska RÚV) sem allir kollegie-búar óttast!!! Hann var kominn til að láta okkur borga fyrir að eiga sjónvarp. Mikið andskoti var þetta slæm byrjun á deginum! Héðan í frá þurfum við að borga 1000 dkk fyrir að eiga sjónvarp. Flestir komast hjá þessu með því að opna bara ekki fyrir manninum, en ég vissi náttúrulega ekki hver stóð við dyrnar hjá okkur. Venjulega er sent hótunarbréf fyrst þar sem þeir segjast birtast eftir viku eða tvær. Og við fengum auðvitað ekkert svoleiðis bréf. Hnuss... þetta eru víst lögin í landinu. Og á maður ekki að fara eftir lögunum?

Já, og svo klukkaði Tóta mig. Það er víst einhver nýr klukkleikur í gangi, Íslendingar fá alltaf æði fyrir einhverju!

Núverandi tími: 15:20 (breytt í vetrartíma í gær - stórundarlegt fyrirbrigði)
Núverandi föt: Gallabuxur, bolur, flíspeysa og inniskór
Núverandi skap: Nenni ekki að læra, en ætla samt að læra - dugleg!
Núverandi hár: Í tagli og toppurinn í spennum, orðið úr sér vaxið en ég þori ekki í klippingu hérna úti
Núverandi pirringur: Krakkar í Hrekkjavökubúningum að betla nammi, allt of amerískt!
Núverandi lykt: Ný-lykt af svefnsófanum, virðist aldrei ætla að hverfa
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Læra
Núverandi skartgripir: Trúlofunarhringur, hringur og eyrnalokkar sem ég fékk í útskriftargjöf
Núverandi áhyggja: Er ég ekki nógu dugleg að læra?
Núverandi löngun: Súkkulaðikex og mandarínur, ég á bæði svo af hverju ekki? ;)
Núverandi ósk: Að sem flestir komi að heimsækja okkur í Köben
Núverandi farði: Smá púður, eyeliner og maskari
Núverandi eftirsjá: Að hafa ekki farið niður í bæ um helgina eins og planið var
Núverandi vonbrigði: Að þurfa að borga DR 2000 dkk á ári
Núverandi skemmtun: Sudoku, Ørnen, Desperate Housewives, ER og Sálarballið um næstu helgi
Núverandi ást: Svenni minn
Núverandi staður: Litla herbergið í íbúð 7D á Trørød kollegie-inu í Vedbæk í Danmörku
Núverandi bók: Sjálfstætt fólk er komin á náttborðið
Núverandi bíómynd: Flightplan, fór á hana á föstudaginn og fannst hún ekki góð...
Núverandi íþrótt: Hvenær hef ég verið þekkt fyrir að stunda íþróttir?!?
Núverandi tónlist: Ég bíð eftir nýju Hjálmaplötunni, pabbi?
Núverandi lag á heilanum: Ekki neitt
Núverandi blótsyrði: Hmmm... ég held að ég blóti mjög sjaldan, djöfulsins kannski
Núverandi msn manneskjur: hormilla, Nina, Gróa, 100% Ásta, 100% Halla, 100% Inga, Berglind, Finnur, gaui magg, Harpa, Kenneth @SHÍ, one more cup of coffee, Róbot bóndi - idnób tobóR, Stones í kvöld, Víkingur vísindapiparsveinn, Wringa, Þórólfur, Vala Beggerts, 100% Inga Lillý
Núverandi desktop mynd: Einhver blá HP mynd
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Borða, læra, horfa á sjónvarpið
Núverandi manneskja sem ég er að forðast: Engin!
Núverandi dót á veggnum: Mynd sem amma hans Svenna málaði, rosa falleg

ÚFF! Takk, Tóta! Ég er að pæla í að klukka Svenna svo hann bloggi nú einhvern tímann.

föstudagur, október 28, 2005

Steina, Sálin og ísbíllinn!

Um næstu helgi er von á Steinu (sem var með mér í verkfræðinni) hingað til Köben. Hún er að fara í árshátíðarferð með vinnunni sinni en hefur nógan tíma til að hitta okkur Tótu líka - frábært! Við kíkjum líklega með henni á Strikið, á kaffihús, út að borða og margt fleira skemmtilegt. Síðast en ekki síst munum við skella okkur á SÁLARBALLIÐ!!! Það verður örugglega meiriháttar fjör ;-)

Við Svenni höfum nú ekki verið iðin við lærdóminn í dag en við erum þó loksins búin að klára að mála. Við áttum eftir að mála einn vegg í eldhúsinu og aðra hliðina á hurðunum. Það er gott að vera búin að þessu. Svo í rólegheitunum hér heima heyrði ég skyndilega mjög skemmtilegt hljóð - það voru bjöllurnar í ísbílnum! Við höfum ekki einu sinni séð ísbílinn áður svo við ákváðum að skella okkur út og kíkja á þetta. Hann var þá bara hérna á bílastæðinu við kollegi-ið og íbúarnir hérna þustu út að kaupa sér ís. Við keyptum okkur alvöru jarðarberjaís og íspinna. Namminamm!!!

Í kvöld kíkjum við kannski í bíó, það er verið að frumsýna Corpse Bride og þar sem Tim Burton myndir eru farnar að vekja mikinn áhuga hjá mér þá kíkjum við kannski á hana. Góða helgi!

fimmtudagur, október 27, 2005

Nýjar myndir!

Oh, ég er svo dugleg að setja inn myndir, er það ekki? ;)

Annars erum við komin í helgarfrí þar sem héðan í frá eru bara verkefnatímar í steypu á föstudögum hjá mér, og mér finnst betra að vinna verkefnið heima, í ró og næði. Þannig að við lærum væntanlega á morgun og á sunnudaginn, en á laugardaginn kíkjum við kannski í góðan hjólatúr til Holte og skoðum allar flottu villurnar þar. Þar er nefnilega svokallað "millahverfi" þar sem húsin eru eiginlega bara hallir í okkar augum, með risastórum lóðum og innkeyrslum með hliðum og svona. Eða við kíkjum bara á hina eina sönnu höll niðri í bæ og í kjölfarið í Kongens Have. Sama hvað við gerum verður myndavélin með og við deilum þessu öllu með ykkur, elskurnar okkar!

þriðjudagur, október 25, 2005

Fyrsta ellefan og sófinn kominn í hús!

Já, undarlegir þessir Danir stundum. Ég fékk sem sagt 11 í prófinu sem ég var í um daginn. Það þýðir að ég gerði tæplega 97% rétt. Spes að hafa svona undarlegan skala. Svo er meira að segja stundum hægt að fá 13 - en það er held ég bara fyrir einhver ofursúperdúpermegagóð verkefni.

Sófinn sem pöntuðum í Ikea í lok ágúst kom loksins í gær! Kærkomin viðbót í íbúðina okkar. Nú eru öll húsgögn komin sem við viljum og þurfum að hafa í íbúðinni. Sófinn er mjög þægilegur og ég held að Svenni sé búinn að liggja í honum síðan hann kom ;)

Helgin var annars mjög fín hjá okkur. Við fórum í heimsókn til Tótu á laugardaginn og svo kíktum við öll á kaffihús niðri í Lyngby. Um kvöldið misstum við sko ekki af Eurovision afmælinu og sátum límd við sjónvarpið. Sunnudagurinn fór svo að mestu í verslunarleiðangur. Veðrið var nefnilega svo leiðinlegt að við nenntum ekki að hjóla og fórum því með strætó. En eins og almenningssamgöngur eiga að vera góðar hér þá eru þær ömurlegar á sunnudögum; strætó gengur á klukkutíma fresti! Þannig að það fór drjúgur tími í að bíða eftir strætó. Við elduðum svo frábæran mat um kvöldið og buðum Tótu í mat. Það var voða notalegt - pínu sunnudagsfílingur eins og heima.

Ég smelli inn mynd af nýja sófanum fljótlega, nenni því einfaldlega ekki núna - Svenni liggur líka flatur í honum ;)

Skólinn gengur sem sagt ágætlega. Ég þarf að fara að vera svolítið duglegri með steypuverkefnið mitt, en það er ekkert stress ennþá. Svenni fer í vísindaferð með skólanum á mánudaginn til Jótlands í kúrsinum Vindkraft og energi. Hann fer í heimsókn til Siemens meðal annars. Spennandi!

föstudagur, október 21, 2005

Fleiri myndir frá Stokkhólmi

Ég er nú búin að setja inn restina af myndunum frá Stokkhólmi - sjá hér!

Annars er búið að vera mikið læristuð á okkur Tótu síðan við Svenni komum frá Svíþjóð og Tóta frá Íslandi. Hef því hreinlega ekki haft tíma til að blogga. Við erum að vinna verkefni í Bygningsenergi sem við eigum að skila næsta föstudag. Við lentum með einhverjum manni í þessu verkefni sem við vorum ekkert allt of sáttar við - hann lyktar eins og fyllibytta! Svo vorum við búum að skipta verkum fyrir haustfríið og við Tóta ætluðum að sjá um að setja allt draslið saman. Svo sendi hann okkur sinn hluta og hann skrifaði varla eina blaðsíðu! Og hans litlu útreikningar voru vitlausir að okkar mati! Svo við gerðum hans hluta upp á nýtt og svo vitum við ekkert hvað við segjum við hann. Okkur finnst allavega ekki eðlilegt að hann kvitti undir verkefnið þegar við skilum því. Vesen!

Stokkhólmsferðin var hins vegar alveg æðisleg!!! Við höfðum það svo gott og það var svo gaman að hitta þau öll. Viktor er búinn að breytast svo mikið síðan ég sá hann síðast en Svenni var að sjá hann í fyrsta sinn. Fannar er alltaf jafn rólegur og þægur svo maður varla tekur eftir honum! En við fórum og horfum á hann á fótboltaæfingu og ég labbaði með Söru að sækja hann í skólann. Hann er orðinn svo mikill strákur!

Svenni fékk reyndar rosa hálsbólgu áður en við fórum svo hann var bara heima á laugardaginn á meðan við hin skruppum í bíltúr niður í bæ og löbbuðum aðeins í gegnum bæinn. Á sunnudaginn var Svenni svo til í að kíkja eitthvað út svo við Sara, Svenni og Fannar skelltum okkur aðeins í Farsta (lítill verslunarkjarni stutt frá heimili Söru) og kíktum aðeins í búðir og fengum okkur kaffi. Á mánudag fóru Helgi og Fannar í vinnu og skóla en við hin kúrðum fram eftir og fórum aðeins í bæinn eftir hádegi. Við Svenni keyptum þar DVD-safn með Matrix-myndunum en tókum eftir því, á leiðinni heim, að það vantaði nokkra diska í hulstrin. Svo það þýddi að við þurftum að fara aftur í bæinn á þriðjudaginn og skila þessu. Það var nú ekki alveg planið, en Sara og Viktor komu með okkur og við fórum bara á bílnum svo við gætum öll verið komin heim til að sækja Fannar á réttum tíma í skólann. Við náðum þó að slaka aðeins á og fá okkur hádegismat og svoleiðis.

Það var bara alveg yndislegt að hitta þau og skrítið að núna erum við bara í næsta landi! Lestarferðin tók ca.5 og 1/2 tíma í allt. Okkur fannst við samt ekki hafa farið í annað land - mjög spes! En við vonum að þau geti einhvern tíma komið í heimsókn til okkar og svo er nokkuð öruggt að við skreppum til þeirra aftur. Við hittumst nú líka öll um jólin þar sem nú komast allir til Íslands, líka Helgi! Ég er bara strax farin að hlakka til jólanna - er það ekki í fína lagi? ;)

föstudagur, október 14, 2005

Stockholm here we come!


Eftir um það bil tvær klukkustundir verðum við í lestinni á leið til Malmö og þaðan förum við með X2000 lestinni til Stokkhólms. Við erum farin að hlakka mikið til að sjá fjölskylduna á Lövsundsvägen! Við verðum hjá þeim þangað til á miðvikudag. Restina af fríinu - en við erum í fríi alla næstu viku - ætlum við að nota í að læra smá og svo kannski verðum við túristar í Köben í einn dag eða svo. Við þurfum nú að sjá Litlu hafmeyjuna og Rosenborg og svoleiðis. Ekki hægt að vera þekkt fyrir annað.

Jæja, elskurnar mínar, hafið það nú gott um helgina! Við látum kannski heyrast frá okkur eitt eða tvö orð á meðan við erum í Svíaríki.

þriðjudagur, október 11, 2005

Von er á góðum gesti

Pétur, bróðir Svenna, kemur til okkar frá Hollandi annað kvöld. Hann ætlar að gista hjá okkur í eina nótt, en hann er að fara að funda eitthvað hér í Köben - frábært! Heppilegt að við skulum búa þar, haha! Við hlökkum rosa til að fá hann til okkar. Svo er spurning hvort við getum skroppið í heimsókn til fjölskyldunnar í Hollandi áður en hún verður ekki lengur í Hollandi. Annars hittum við þau að sjálfsögðu á Íslandi um jólin. Við ætlum að gefa Pétri reyktan silung sem við veiddum í sumar. Gaman að því!

Lífið gengur annars sinn vanagang. Ég er búin að finna út úr því hvernig á að breyta lyklaborðinu í skólanum yfir á íslensku - svo ég er í skólanum núna. Er á leið í verkefna-aðstoðar-tíma í steypukúrsinum. Hér fáum við sko nóg af aðstoð við verkefnin - þ.e.a.s. ef maður kann að nýta sér það. Á Íslandi erum við alls ekki vön þessu. Þar reynir maður fram í rauðan dauðann að leysa verkefnin sjálfur. Og ef að gengur ekki þá fær maður aðstoð frá skólafélögum. Og ef það gengur svo ekki þá fer maður loksins og bankar upp á hjá kennaranum. Hér fer alltaf helmingur af hverjum tíma í að sitja og reikna dæmi og kennarinn gengur á milli og aðstoðar. Ég þarf aðeins að venjast þessu, er meira fyrir að gera hlutina sjálf.

3 dagar í Stokkhólm!!!

sunnudagur, október 09, 2005

The Brothers Grimm


Á föstudagskvöldið gerðum við okkur ferð niður í Lyngby og fórum á kaffihús og í bíó. Við fórum að sjá myndina The Brothers Grimm. Mér fannst þessi mynd mjög skemmtileg, en hefði þó alveg verið til í að sjá Charlie and the Chocolate Factory aftur, hún var svo æðisleg! En þetta var ekki slæmt - mun skemmtilegra en að sitja yfir sjónvarpinu heima.

Í gær fórum við svo í innkaupaleiðangur til Holte og versluðum fullt af kjöti og grænmeti, og ég veit ekki hvað og hvað. Allt kostaði þetta miklu minna en það gerir á Íslandi. Mjög ánægjulegt. Um seinnipartinn ákváðum við svo að skreppa í smá hjólatúr. Hann varð öllu lengri heldur en við ætluðum, en þó skemmtilegur, svo við vorum ansi þreytt og löt þegar við komum heim.

Dagurinn í dag hefur svo að mestu farið í lærdóm, kominn tími til! Ég er byrjuð á stóru verkefni í steypukúrsinum mínum, en það hefur verið frekar erfitt að byrja þar sem þessi kúrs og allar kennslubækurnar í honum eru á dönsku. Svo það hefur í raun tekið mig næstum 3 vikur að skilja nákvæmlega leiðbeiningarnar með verkefninu!

Í lok þessarar viku munum við svo halda með lestinni til Stokkhólms, jibbí! Langþráð ferð að heimsækja Söru systur og fjölskyldu. Viktor Snær (yngri sonur hennar) er nú farinn að skríða og standa upp svo það verður fjör að elta hann svolítið. Svo er Fannar Már (sá eldri) byrjaður í skóla og við Svenni fáum kannski að fylgja honum í skólann í næstu viku, en við ætlum að vera þangað til á miðvikudag. Þetta verður sko alveg frábært!

fimmtudagur, október 06, 2005

Prófið búið og frábær matur að malla!

Já, ég er búin að taka fyrsta prófið mitt í DTU og gekk það bara nokkuð vel að ég held. Það var auðveldara að taka próf á dönsku en ég hélt, þar sem ég er í verkfræði þarf ég heldur ekki að skrifa löng svör bara reikna pínu.

Svenni var að elda dýrindis pastarétt með kjúklingi. Nammi, namm! Farin að borða ;)

miðvikudagur, október 05, 2005

Charlie and the Chocolate Factory


Við fórum á mánudag í bíó og sáum þessa snilldarmynd eftir Tim Burton. Hún var bara alveg frábær! Við fórum öll þrjú, ég, Svenni og Tóta, með risastórt bros út úr salnum og harðsperrur í kinnunum!!! Ég mæli hiklaust með þessari mynd fyrir þá sem vilja horfa á sniðuga og skemmtilega mynd.

Annars er ég núna að reyna að læra fyrir fyrsta prófið mitt. Á morgun fer ég í Quiz í Bygningsenergi og gildir það til lokaeinkunnar þar sem ekkert lokapróf er í þessum kúrsi. Það verður fróðlegt að sjá hvernig manni á eftir að ganga að taka próf á dönsku! Wish me luck ;)

sunnudagur, október 02, 2005

Uppáhaldsmaturinn hans Svenna


um þessar mundir er kjúklingasalat eins og hann talar um hér að neðan. Í þessu salati er kál, gúrka, cherry-tómatar, rauð paprika, kjúklingur kryddaður með eðalkjúklingakryddi frá Pottagöldrum, fetaostur, sólþurrkaðir tómatar og salthnetur! Jummí!!! Þetta er rosa gott - eins og sést ;)

Fimm gagnslausar staðreyndir um mig

Sara klukkaði okkur Svenna um daginn. Svenni var fljótur að bregðast við en hér koma mínar staðreyndir:

1. Ég er með fullkomnunaráráttu á háu stigi! Já, ég viðurkenni það. Ég verð að gera allt 150%, og þá meina ég ALLT!!! Snarbiluð er orð sem margir myndu nota yfir mig.

2. Ég er mjög flughrædd. Þrátt fyrir að vera nokkuð vel gefin þá virðist ég ekki skilja það að það eru miklu meiri líkur á að ég drepist á hjólinu mínu á leiðinni í búðina en í flugvél á leið til Íslands. Ég hef heyrt að þetta gæti tengst staðreynd nr. 1 þar sem "perfectionistar" vilja hafa stjórn á öllu, hehemmmm... Þetta byrjaði allt með hræðilegu flugi til Færeyja, þar sem ég var ein að ferðast út af vinnunni.

3. Mér finnst rosalega gaman að taka til og þrífa. Það er eitthvað svo róandi og maður slappar vel af á eftir. Einhverra hluta vegna tók Haffi vinur minn upp á því að kalla mig Monicu ;) Ég á erfitt með að fara í partý án þess að byrja að taka til og setja tómar dósir í poka.

4. Mér finnst almennt mjög leiðinlegt að stunda íþróttir. Ég fæ mína útrás með ryksuguna á fullu og skrúbbinn í klósettinu. Maður getur sko svitnað rækilega við húsverkin!

5. Mér finnst nánast allur matur góður. Ég mun seint vera kölluð gikkur. Reyndar finnst mér rósakál ofsalega vont, kjúklingabaunabuff vekur slæmar minningar og svo finnst mér of mikið af kjöti, þ.e.a.s með litlu meðlæti, ekkert voðalega spennandi.

Svenni misskildi aðeins leikinn og hélt að allir sem læsu væru klukkaðir. Það er ekki rétt, svo við viljum klukka Helga hennar Söru. Hann á örugglega erfitt með að velja AÐEINS 5 staðreyndir!

Að lokum: Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna úr partýi hjá Pawel og Önnu Heru og fleiri myndir af nýjum húsgögnum (erum alltaf að kaupa eitthvað nýtt!).