Við skemmtum okkur svona líka vel í gærkvöldi! Byrjuðum kvöldið í eldhúsinu hjá Tótu með því að panta pizzu, drekka rauðvín og Breezer, horfa á danska Eurovision, spjalla og hlæja mjög mikið! Héldum svo á Þorrablótsballið þar sem var dansað og sungið fram á rauða nótt. Við misstum reyndar af fjöldasöng með Valgeiri Guðjóns. en hljómsveitin stóð sig vel. Myndirnar sýna betur hvað það var ofsalega gaman!
P.s. Einn sjúkrabíll var kallaður til í þetta skiptið - ekki vegna slagsmála þó.
8 ummæli:
Takk fyrir myndinar, gaman að skoða þær. Ótrúlegt hvað maður þekkti mörg andlit á myndunum sem teknar voru yfir fjöldann. ÉG er með ótrúlega útlandaþrá núna langar ekket smá að koma í heimsókn. Hvenær komið þið næst til ísl??
Vá - þetta var ýkt gaman! Góðar myndir.
Myndirnar eru æði, frábært að allir skemmtu sér vel.
Takk, stúlkur mínar!
Íris: Komdu bara í heimsókn!!! Þið eruð alltaf velkomin ;) Við vitum ekki hvort að við komum til Íslands fyrr en í sumar - það er ennþá spurning með páskafríið.
Jamm það er aldrei að vita nema maður skelli sér í helgarferð....Hvað sjúkrabíladjók er þetta annars?
Bara íslendingar að djamma - og ekkert djók. Allur varinn góður þegar svona lið hittist;)
Það þurfti víst þrjá sjúkrabíla í fyrra - aðallega vegna gríðarlegrar ölvunar - og núna var sjúkrabíll fyrir utan þegar við vorum að fara. Danirnir taka greinilega öðruvísi á ofurölvun!
ef myndin af svenna þegar hann er búinn með allt coke-ið, er ekki snilld vikunnar þá veit eg ekki hvað, eg er í kastinu í þessum skrifuðu orðum....
Skrifa ummæli