miðvikudagur, apríl 19, 2006

Svenni Rokk

Ég er ennþá með suð í eyrunum frá því í gær vegna þess að Anthrax rokka feitt.

Annars er ég núna í tíma í Innovation in Product Development og þetta er að verða frekar þreytt. Ég er alveg til í að þessi kúrs fari að klárast. Það er svo sem nokkuð öruggt vegna þess að lokaskýrslan er due the 3rd of May. Crap! Shite!
Anyway, ég sá albínóa-dádýr í gær, í annað sinn. Ekki þú! (Allavega er það ótrúlega ólíklegt)

I am a doughnut.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rock it Sven! Þarna kannast ég við þig, gaur. Hvað dádýrið varðar skáka ég þér með því að hafa séð skunk. Og ekki nóg með það heldur hjólaði ég yfir helvítið (vegna svartamyrkurs)! Og áður en kvikindið dó sprautaði það viðurstyggilegri fýlu yfir mig og hjólið mitt. Er búinn að henda skónum sem ég var í, en hjólið ber enn merki þessara viðskipta.

Any how, good luck með lokaverkefnið. Góðar stundir, Baldvin

Nafnlaus sagði...

Geri ráð fyrir að greyið hafi dáið því ég fór með bæði dekkin á fullu afli yfir mitt bakið á kvikindinu. Fór hornrétt yfir hvítu röndina. Alla vega fór hann verr út úr þessu en ég. Kannski dó hann ekki strax heldur hægum og kvalarfullum dauðdaga, liggjandi bakbrotinn við hjólreiðastíginn.

Rektorana skal ég binda með glöðu og svo borgarðu bara í blíðu, ekki satt. Þú skaffar þó vaselínið. Nei #$%¨%, hverjum datt í hug að þessi vaselínbrandari væri fyndinn! Verðum svo að fara eitthvert til veiða í sumar og hleypa frummanninum út, það er alveg á hreinu.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið, Guðlaug! Ákvað að smella þessum pósti hérna því ég fann hvergi netföng eða SMS-númer hjá ykkur þarna ytra.

[Er ekki örugglega kominn 21. hjá ykkur, það er nefnilega enn 20. hjá mér en tímamunurinn er ansi hreint magnað fyrirbrigði]

Alla vega, til hamingju með að vera orðin kvartaldar gömul :D

Guðlaug sagði...

Takk kærlega fyrir, Baldvin! Og jú, thad er kominn 21. apríl - sá gódi dagur. Thú átt heidurinn af fyrstu afmæliskvedjunni í dag, varst meira ad segja á undan Svenna ;)

Nafnlaus sagði...

Iss, tetta er nu ekkert! Eg sa einu sinni svartan mongolita. Annars kemst eg nu bara ekki yfir hvad tad er ogedslega fyndid ad Baldvin skyldi hjola yfir skunk:) Tad er bara algjorlega gjorsamlega faranlegt!!!!!!!!!!!

Nafnlaus sagði...

já og til hamingju með afmælið Guðlaug:)

Nafnlaus sagði...

Haldið þið að ég hafi ekki bætt öðrum skunki í safnið! Þessi var nú svo sem aldrei í hættu heldur sá ég hann bara við hjólreiðastiginn, hahaha. Þetta var ungi, á stærð við lítinn kött. Frekar sætur í sjálfu sér en hafa verður í huga yfir hvílíku dómsdagsvopni þessi skunkur býr (eða mun búa?).

Ciao, að sinni. Vona að þið hafið haft það gott á afmælisdaginn [og svo sem aðra daga líka ;)]

Nafnlaus sagði...

guðlaug, til lukku með daginn um daginn!!!

Guðlaug sagði...

Þakka ykkur öllum kærlega fyrir afmæliskveðjurnar! Betra er seint en aldrei... ;)