Ég var sumsé staddur á Halo, sem er svona heimur sem er byggður innan á hring, hence nafnið Halo. Það er sumsé hægt að labba um og keyra á innra yfirborði Halo. Ég var búinn að skjóta ógrynni af geimverum og var svona u.þ.b. að klára borðið. Félagar mínir voru að hlaupa upp í Pelican flaugarnar og á leið frá yfirborðinu. Þeir voru sumsé að flýja, það voru nefnilega Hunterar á hælunum á þeim, see figure 1:

Figure 1: Gaurarnir sem félagarnir eru réttilega hræddir við.
Nú er ég orðinn svo mikil Halo hetja að ég er ekki lengur hræddur við Huntera vegna þess að ég kann trikkið til að drepa þá. Þeir eru nefnilega rosalega vel brynvarðir en þeir eru með svona "weak spot", see figure 2:

Figure 2: Vonandi sést í magann á honum, það er nefnilega "the weak spot"
Trikkið er sumsé að skjóta þá í magann eða bakið með skammbyssu eða riffli. Þá drepast þeir strax. Ég beið því bara eftir að þeir gæfu færi á sér og svo myndi ég bara skjóta þá. Bang! Búið! Þetta var samt eitthvað að klikka og þá tók draumurinn að breytast yfir í óútskýranleika.
Það sem gerðist svo var frekar undarlegt vegna þess að annar hunterinn; þeir koma sumsé alltaf í pörum; fór að skipta um föt...
Hann var sumsé með ferðatösku sem virtist vera ú latex-ish efni. Hann fór sumsé út í horn að skipta um búning á meðan hinn var allur í því að reyna að drepa mig með þungum höggum með skildinum sínum. Síðan tók ég eftir því að Hildur Björk frænka, systir Halldórs Th var að koma út úr herberginu, með sína ferðatösku. (Það var samt ekkert herbergi þarna, ég er á Halo)
Einhvern veginn tókst mér samt að fá Hunterinn til að hætta að reyna að drepa mig með því að fara að gera grín að bróður hans, hvað það væri asnalegt að sjá svona tröll með svona litla tösku. Hún var sumsé á stærð við flugfreyjutösku.
Þegar þessu var lokið þá langaði mig samt aðeins að drepa Hunterana og fór því að leita að rocket launcher sem ég hafði séð áður en hann var farinn svo að ég nennti eiginlega ekkert að reyna að drepa þá enda voru þeir eiginlega búnir að missa áhugann, gengu bara burt í rólegheitum, einn þeirra með asnalega litla ferðatösku og hinn með svaðalegasta morðtól í öllu arsenalinu í Halo.
3 ummæli:
Guðlaug! Pæling að fara að leyfa Svenna bara að leika í tölvunni í klukkutíma á dag - svona eins og gert er við litlu börnin!
HAHAHAHAHA ... bíddu aðeins ... HAHAHAHAHA. Ég sé þig svo fyrir mér hlægja að hunternum út af flugfreyjutöskunni. Haltu áfram á réttri braut Svenni!!!
Ég þarf greinilega að fara að spila Halo.
Skrifa ummæli