Annars geri ég ráð fyrir að ýmislegt nýtt berji að dyrum okkar vegna þess að þetta verður fyrsta árið þar sem við erum bæði í vinnu allt árið og fáum laun og sumarfrí og þess háttar. Kannski tekst okkur báðum að veiða lax á flugu, allavega silung. Við munum fara í golftíma, það gæti verið gaman.
Við höfum samt það æðsta takmark á þessu ári að komast í okkar eigin íbúð sama hvað það kostar, tengdaforeldrarnir alveg að ganga af okkur dauðum. Elda aldrei nema á virkum dögum og stinga eiginlega alltaf af um helgar.
Annars er það helst að frétta að við Guðlaug erum núna búin að fá hinn laserinn, þann sem er ekki bara 5mW heldur 50mW. Hann er rosalegur, myndar svona ljóssúlu sem sést í marga kílómetra, alveg satt. Kíkirinn er líka orðinn vel hæfur í bæði landskoðun og stjörnuskoðun. Annars er það frekar lame hvað maður er skemmdur; ég vil sjá þetta eins og Hubble myndirnar en það er svo óralangt frá því hvað svona lítill gaur getur. Tel mig þó hafa séð votta fyrir íshettum á Mars núna á föstudaginn. Júpíter ætti svo að vera eilítið stærri í kíkinum sem er líka frekar kewl. Ég er nokkuð viss um að þetta er líka það sem Guðlaug myndi telja til helstu tíðinda desembermánaðar.
Eins og gefur að skilja er frekar lítið að gera í vinnunni hjá mér rétt þessa stundina en það er 25-30 manna fundur í gangi í Keflavík um allt og ekkert í álverinu og á meðan gerist ekki Schwanz. Ég las einmitt á netinu ýmsar pælingar sem einhver hafði áttað sig á í gegnum árin. Hér eru þær pælingar sem mér finnst bestar.
- People who feel the need to tell you that they have an excellent sense of humor are telling you that they have no sense of humor.
- You should never say anything to a woman that even remotely suggests you think she's pregnant unless you can see an actual baby emerging from her at that moment.
- The one thing that unites all human beings, regardless of age, gender, religion, economic status, or ethnic background, is that, deep down inside, we all believe that we are above-average drivers.
- There is a very fine line between "hobby" and "mental illness."
- People who want to share their religious views with you almost never want you to share yours with them.
- If you had to identify, in one word, the reason why the human race has not achieved, and never will achieve, its full potential, that word would be "meetings."
- If there really is a God who created the entire universe with all of its glories, and He decides to deliver a message to humanity, He will not use, as His messenger, a person on cable TV with a bad hairstyle.
- You should not confuse your career with your life.
- A person who is nice to you, but rude to the waiter, is not a nice person.
Til hamingju með afmælið, Sirrý. Takk fyrirfram fyrir matinn. Hann verður góður.
Er annars einhver að fara til Brugge í Belgíum bráðlega? Hann gæti kannski keypt fyrir mig kjuða fyrir snókerinn þar.
Ég er sumsé búinn að komast að því að magn hluta sem mig langar í er í öfugu hlutfalli við það hversu mikið er að gera í vinnunni, þ.e. nettími eykst með vinnuleysi og þegar allt netið er búið þá fer maður á ebay og skoðar hvað hlutir sem mann langar í kosta voðalítið.
Nördar: Endilega látið mig ekki vita af einhverju sem er töff á nördalegan hátt því þá mun ég þurfa að eignast það og þá verður Guðlaug hraðar leið á nördaskapnum í mér.
Allavega, þetta er orðið frekar langt svona miðað við að ég geri þetta á vinnutíma svo að nú ætla ég að reyna að gera eitthvað í skjalinu ógurlega sem hefur verið nokkurn veginn eins síðustu 3 dagana.
Þraut: Hvenær kemur vinnuholskeflan?