föstudagur, desember 23, 2005

Komin til Íslands!

Í gær eyddum við síðasta deginum í Danmörku fyrir jól á Strikinu. Tókum því bara rólega og kíktum á kaffihús. Voðalega notalegt! Í dag er nóg á dagskrá; hettusóttarsprauta (!!!), kíkja í nýjar íbúðir fjölskyldumeðlima, American Style, Lækjarbrekka - eintóm gleði!

Við verðum bæði með gömlu íslensku símanúmerin okkar á meðan við erum á landinu. Sjáumst vonandi!

miðvikudagur, desember 21, 2005

Búin í prófum - Ísland á morgun!

Fyrstu prófatörninni í DTU er nú lokið. Við erum bæði mjög sátt! En mikið er nú stressandi að taka próf á nýjum stöðum. Það eru allt aðrar venjur hér og í prófum er maður mjög viðkvæmur fyrir breytingum. Hér eru til dæmis laus blöð sem á að skrifa prófúrlausnina á og á síðustu blaðsíðuna á maður að setja undirskrift. Blöðin fara svo í lokað umslag. Auðvitað gleymdi ég, snillingurinn, að skrifa undir á síðustu blaðsíðuna í prófinu í gær og fór alveg í kerfi. Það voru þó fleiri útlendingar sem klikkuðu á því sama og það bjargaðist. Eitt virðist þó sameiginlegt með prófafyrirkomulaginu hér og heima - gamla fólkið sem situr yfir!!! Ótrúlega fyndið! Þetta er stundum svo skondið lið; heyrir illa, talar hátt, leysir krossgátur, prjónar...

Við komum heim annað kvöld...

þriðjudagur, desember 20, 2005

Massastuð framundan!

Jamms, búin að massa steypuna og þá er það að massa stærðfræðina á morgun - ekki flóknara en það! Tóta kom í mössun og hamborgara í dag - frábært að fara yfir efnið saman. Takk!

Síðasta jólagjöfin verður keypt á morgun, öllum gjöfunum pakkað inn, okkur pakkað í töskur og send til Íslands daginn eftir ;o)

Sjáumst!

fimmtudagur, desember 15, 2005

Its not what you think!

Prófiði að smella á myndina hér fyrir neðan.

Jafnvel þótt svipur minn bendi til þess að ég sé að pissa í sófann þá er það ekki satt.

!!!gim á apmurp go akúk ða agelinfen re gÉ

Þraut: Er þetta standardinn sem þið viljið sjá á þessu bloggi?

Hah! Blogg frá mér en ekki Svenna!

Núna er rok í Danmørku. Snillingarnir sem hønnudu bókasafnid í DTU settu rimlagardínur UTAN Á gluggana. Og hvad thýdir thad í roki thegar madur er ad lesa fyrir próf?!?

Ein vika...

sunnudagur, desember 11, 2005

Harry Potter og litlu jólin!


Þriðji sunnudagur í aðventu er senn á enda og jólaskapið komið í hámark! Það er margt sem veldur því að Guðlaugin er orðin spenntari en venjulega fyrir jólin:
- eftir einungis eina og hálfa viku komum við til Íslands og allir fjölskyldumeðlimir okkar verða á landinu um þessi jól
- okkur var boðið til Dísu og Hannesar í gærkvöldi og héldum við litlu jólin með tilheyrandi reyktum silungi, lambalæri, Waldorfsalati og ís og ávöxtum, pakkaleik og Trivial Pursuit, vorum tíu Íslendingar þegar mest var
- er búin að skrifa jólakort!!!
- er búin að kaupa margar jólagjafir, spennó spennó
- er búin að setja seríur og aðventuljós í glugga

Þess má geta að undanfarin ár (á Íslandi) hef ég gert síðastnefndu atriðin þegar ég hef verið búin í prófum - eða bara sleppt því! Ófá árin hef ég ekki haft tíma til að gera nokkurn skapaðan hlut þar sem prófin hafa oft ekki klárast fyrr en 21. eða 22. des. Það gera þau reyndar líka núna, en munurinn er sá að ég fer í tvö próf núna en ekki fimm eða fleiri eins og heima. Danirnir eru nefnilega ekkert voðalega hrifnir af prófum og láta því oft nægja að gera verkefni og stutt tímapróf. Þetta finnst mér einkar þægilegt fyrirkomulag og mikil tilbreyting!

Á föstudaginn skilaði ég hinu stórkostlega steypuverkefni mínu og hélt niður í Lyngby með Tótu og Svenna. Við versluðum nokkrar jólagjafir, fórum á kaffihús og að sjá Harry Potter og flammernes pokal, eins og hún heitir á dönsku. Algjör snilldarmynd, og yfirhöfuð bara frábær dagur! Svenni hefur svo verið duglegur að lesa um helgina þar sem hann fer í próf í fyrramálið í Styrkelære 3 og aftur á fimmtudaginn í Køretøjsteknik. Ég fer í mín tvö próf 20. og 21. des. Og svo er það Ísland 22. des!!!

Hlakka til að sjá ykkur öll - eða sem flest að minnsta kosti ;)

fimmtudagur, desember 08, 2005

Ég tók eitthvað svona netsprellprófhandafólkiíprófum thingy

You have a Type A personality so big it makes other Type A's shrink away in shame.
You never shy away from adversity - and you love to tackle impossible problems.
Failure is not an option for you, and more than a few people are put off by your ego.
You tend to be controlling, and you hate leaving anything up to chance.

Your strength: Your bold approach to life

Your weakness: You don't accept help

Your power color: Bronze

Your power symbol: Pyramid

Your power month: October

Þetta er nú ekkert voðalega on the spot, eða hvað finnst ykkur.

mánudagur, desember 05, 2005

Takk fyrir samveruna!



Já, nú er liðin alveg hreint frábær helgi. Hún byrjaði á fimmtudagskvöldið en þá voru Nína og Nenni búin að bjóða okkur og Hildunum tveimur út að borða á geggjaðan ítalskan stað. Hildarnar tvær eru frænkur Svenna, ein úr hvorri fjölskyldu. Við skemmtum okkur konunglega, hlógum, drukkum og borðuðum ljúffengan mat.

Á föstudag fóru N&N í julefrokost með Pétri "afa" og dóttursyni hans, en þeir búa hér í næsta bæ. Upphaflega ætluðum við Nína að kíkja í búðir eftir það, en sem betur fer ákváðu þau að taka því rólega og komu því bara heim og við gátum aðeins slakað á. Um kvöldið tókum við svo lestina út á Amager og fórum á Blue Elephant að borða. Við höfðum öll borðað á svoleiðis stað áður, við Svenni í París og N&N í Dubai og hér í Köben. Við hlökkuðum mikið til þar sem þetta var eiginlega uppáhalds veitingahúsakeðja okkar allra. En þvílík vonbrigði!!! Þetta er tælenskur staður og það var verið að spila gamla ameríska slagara! Svo tóku gestir staðarins sig til og dönsuðu við ósköpin! Hnuss, þetta var sko ekki sú töfrandi, tælenska stemmning sem við höfðum átt í vændum. En jæja, við skemmtum okkar ágætlega og það notalegt að fara bara fjögur saman út að borða.

Á laugardag tókum við Nína daginn snemma niðri á Striki, þar sem hún hafði ekki enn komist í almennilegar búðir. Hún náði að kaupa svolítið og svo í hádeginu var N&N boðið til vinahjóna sinna, Poul og Kirsten, sem búa nánast á Strikinu, og við Svenni dunduðum okkur á meðan og keyptum nokkrar jólagjafir. Þvílíkt mannhaf af fólki sem var í bænum! Þetta var eins og á Laugaveginum á Þorláksmessu. Þannig að það var fínt að taka því bara rólega. Um kvöldið var okkur svo öllum boðið í dýrindis mat til Poul og Kirsten. Það var mjög gaman að hitta þau og fínt að æfa okkur aðeins í dönskunni ;)

Í gærmorgun héldu hjónakornin svo heim á leið. Það er skrítið, en skemmtilegt að hugsa til þess að við hittum þau - og alla heima á Íslandi! - eftir rétt rúmar tvær vikur!!! Þið verðið svo að panta tíma hjá okkur, þar sem við erum að verða þéttbókuð allan tímann!!! Can't wait!