Halló, sorglegi bloggfíkill. Hér kemur sorgleg bloggfærsla. Ég, Svenni, ligg núna uppi í rúmi tengdaforeldra minna og hlusta á Steven Wright sem er mjög fyndinn gaur.
Ég fór til verkamanns í gær í endajaxlatöku. Hann notaði kúbein og vélsög til að ná kvikindinu upp ú líkama mínum. Það var frekar vont.
Aðgerin byrjaði á því að hann tróð deyfingarlyfi í kjálkann á mér og fór svo að tala um veiði við mig. Hann er sko að fara í Laxá í Mývatnssveit um helgina svo að hann vildi endilega vita sem flest. Hann hélt mér þannig á spjalli þar til hann skildi ekki hvað ég var að segja og þá byrjaði hann að krukka í mér.
Gaurinn er algjör sérfræðingur í þessu svo að hann byrjaði á að skera burt húðina í einum skurði og svo losaði hann um tönnina með kúbeininu sínu, skar tönnina í tvennt, braut krónuna af og togaði rótina upp með töng. Daginn eftir er ég bara þokkalega vel settur; frekar bólginn en líður bara nokkuð vel.
Þegar maður fer í svona tannuppskurð þarf maður að lifa á maukfæði nokkra daga eftirá. Ég fann mig því knúinn til að fá mér nokkuð vel af ómaukfæði fyrir aðgerðina. Ég hafði því tvo möguleika; Risastór Honey bacon á Quizno's eða Heavy Special. Nú hef ég farið fjórum sinnum á Quizno's í sumar en einungis tvisvar á Amerikanskí stælinskí. Ég kaus því að taka stælingsflokkinn á þetta en fannst ekki nóg að fá bara einn Heavy svo að fékk mér tvo. Loksins. Þannig gat ég einbeitt mér að því hve gott kjöt og hversu góð máltíð einn Heavy í raun og veru er. Þegar sá fyrsti var búinn þá var heil máltíð eftir og það er líka mjög gott.
Núna nenni ég hins vegar ekki að skrifa meira en til að reyna að fá staðfestingu á því að fólk lesi þetta, ætla ég að hafa getraun í lokin.
Ertu búinn að láta taka úr þér endajaxlana líka?
10 ummæli:
Endajaxlarnir mínir eru til friðs, ég er með hámarksfjölda tanna í skoltinum á mér.
já mínir eru foknir... en það var einhver asni sem tók mína jaxla - deyfði mig ekki nógu vel og ég hélt að ég mundi deyja.
Sama hjá mér og Palla - hámarksfjöldi tanna í mínum munni! Virka reyndar bara ótrúlega illa þótt þær séu margar.
ég er búinn að láta taka einn neðri jaxl, það var fjör.
En fyrst við erum í spurningaleik:
1) hvenær komið þið aftur út?
2) hefur þú tekið FEM-HEAVY?
Það var nú einn tekinn fyrir mörgum árum en það þurfti ekki að skera fyrir honum.
Aftur á móti þurfti Siggi minn að fara í svona aðgerð og var ansi lítill í sér á eftir. Greyið ;)
Sjáumst bráðum í grillveislunni.
Kveðja.
Nei, þokkalega ekki :), slæmt að vera ekki veltenntur ;). Ég er bara farin að sakna ykkar ... hef ekki séð ykkur svo rosssalega lengi! Hvenær farið þið aftur út?
Það eru sko allir endajaxlar löngu horfnir úr mínum munni, og fleiri til. Það er sko ekkert grín að vera hjá tannréttingarlækni með fullkomnunaráráttu - teinar tvisvar, takk fyrir!
Gaman að fá öll þessi komment frá ykkur, takk! Við förum aftur út 2. sept, þ.e. eftir 10 daga... og hlökkum mikið til. Svenni hefur ekki tekið FEM-Heavy, en ætlar að gera það núna í haust. Hlakka líka til að sjá þig, Gróan mín, í grillinu!
Þeir sem ekki ná að hitta okkur áður en við förum verða bara að skella sér í heimsókn ;)
O, já ég væri svo til í að koma í heimsókn. Það er nú reyndar ekki hlaupið að því en maður má nú láta sig dreyma.
Já, og allir mínir jaxlar eru á sínum stað og samt alltof mikið pláss fyrir þá.
Jú, ég verð memm í blogginu í vetur ;) Guðlaug ég er ekkert smá impressed hversu fljót þú varst að átta þig á að síðan væri aftur komin í loftið, 3 mínútna viðbragðstími.
Það er búið að rífa úr mér einn, og einn á leiðinni.. get ekki beðið eftir að komast heim í jólafrí svo ég geti pantað mér tíma hjá tannsa! ..mér líst ekkert á að láta einhvern Svissneskan krukka í stellinu þegar hann er hættur að skilja hvað ég segi.. það verður á 2. mínútu og ekki dropi af deyfingu byrjaður að verka
hæ hæ,skodidi mig a alnetinu
hilsen
hb
Skrifa ummæli