fimmtudagur, febrúar 16, 2006

Afmæli og langþráð vísó!

Pabbi gamli á afmæli í dag og óskum við honum innilega til hamingju með það ;)

Á morgun er okkur boðið í vísindaferð af Stéttarfélagi verkfræðinga á Íslandi. Úff! Langt síðan við höfum farið í eina slíka. Maður var orðinn allt of góðu vanur heima á Íslandi. Að ferðinni lokinni verður haldið partý á aðalpartýkollegíinu; Öresundskollegíinu. Stuð, stuð, stuð! Vonandi koma einhverjar myndir...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hef Svenna sterklega grunaðan um að hafa komið sökinni á greyings Viðar Þorberg... Skammastu þín Svenni...

Nafnlaus sagði...

Hvernig var partýið á Öresund - var það nokkuð haldi í K blokkinni, íbúð 101? (þar sem ég sleit barnsskónum...)
Solla

Guðlaug sagði...

Ólstu upp í gettóinu, Solla? ;)
Þetta var annars alveg frábært partý, haldið í festlokale í G-blokkinni og á barnum í kjallaranum. Við tókum engar myndir sjálf en það koma myndir á heimasíðu Íslendingafélagsins.