Jæja, heldur betur kominn tími á blogg. Við erum núna búin að vera á Íslandi í tæpar þrjár vikur! Tíminn líður aldeilis hratt á þessu skeri. Við erum bæði búin að vera að vinna síðan við stigum fæti á landið og erum búin að kaupa okkur bíl - ekki lengi að detta inn í "pakkann". Bíllinn sem við keyptum okkur heitir Skoda Fabia og er station-bíll, hentar einkar vel fyrir farangur gesta okkar í Köben ;)
Margt annað hefur nú verið brallað síðan við komum; heimsóknir til lítilla kríla (til hamingju Gróa og Íris), Stíghús, Sveðjukot, golf, Sara systir og Fannar hennar í heimsókn (sakna ykkar), heimsóknir til fjölskyldu og vina, útskriftarveislur (til hamingju allir útskrifaðir)... yndislegt! Við búum núna heima hjá mömmu og pabba og það eru allir velkomnir í heimsókn :) Við erum með gömlu íslensku númerin okkar.
Ég er búin að skella inn myndum frá Spánarferðinni og mun setja inn myndir úr útskriftarveislum mjög fljótlega. Spánarferðin heppnaðist vel; vorum temmilega mikið í sólbaði, fórum í skoðunarferð til Granada, í vatnagarð og á ströndina. Húsið var náttúrulega alveg geggjað!!! Útsýnið (eins og þið sjáið á myndunum) var óraunverulegt en svo frábært - ekki slæmt að liggja þarna við sundlaugina.
2 ummæli:
hi, hittumst endilega sem fyrst ... vid erum nykomin og forum a laugardaginn
hver eru numerin ykkar aftur (hja okkur 5651572 & 6945652)?
knus, Johanna
Ánægður með myndirnar!!!
Skrifa ummæli