Afsakið þessa afburða slöku frammistöðu mína á þessari síðu. En nú er komið að bót og betrun. Ég ætla að rekja viðburði okkar í réttri tímaröð, hægt og rólega, svo hér kemur smá myndasyrpa frá því í lok júní. Þeim tíma eyddum við að mestu með Sirrý ömmu þar sem hún var hætt í gömlu vinnunni sinni og við nutum góðs af því. Við fundum svokallaðan "åpen barnehage" þar sem heimavinnandi foreldrar eða foreldrar í orlofi geta komið með börnin og leyft þeim að leika og kynnast. Svolítið eins og "mömmumorgnar" heima, nema þetta er opið þrisvar í viku og maður kemur með nesti með sér. Gunni svaf mest allan tímann því hann var svo lítill og Siggi var eiginlega langelstur. En það var gaman að kynnast þessu og spjalla aðeins á norsku. Þessar myndir tók mamma á sumarhátíðinni sem haldin var í opna leikskólanum í lok júní.