miðvikudagur, desember 11, 2013

Veikindi á aðventunni og jólaball

Nú er kominn sá tími árs sem við höngum mikið innandyra og erum dugleg að hittast á jólaböllum og þess háttar. Því fylgja því miður miklar pestir og smit. Siggi byrjaði með hálsbólgu og vægan hita í síðustu viku og var heima í 5 daga. Við leyfðum okkur þó að skella okkur á jólaball Íslendingafélagsins á sunnudaginn. Ég og pabbi sungum við jólamessu íslenska safnaðarins og fengum þann heiður að syngja með Huldu Björk Garðarsdóttur í Ó helga nótt. Það var upplifun fyrir okkur að minnsta kosti... Jólaballið tókst vel og var dansað og sungið í kringum jólatré. Jólasveinar mættu að sjálfsögðu á staðinn og gáfu krökkunum lítinn nammipoka. Siggi lét nammiþörfina ná yfirhöndinni og þáði poka frá sveininum en um kvöldið þegar hann fór að sofa átti ég að lofa því að við færum aldrei á jólaball aftur!! Honum þykir þetta jólasveina-, Leppalúða-, Grýlustúss ekkert sniðugt. Hann getur til dæmis ekki hlustað á lagið um Leppalúða með Baggalúti, honum finnst það hreinlega óþægilegt. Elsku karlinn er með lítið hjarta. En nú erum við Gunni sem sagt tekin við kvefinu hans Sigga og Gunni greyið ósköp slappur og gubbaði meira að segja í morgun. Við höldum því bara áfram að hanga inni... Það hefur þá allavega verið tími til að baka smákökur og eru boxin orðin smekkfull af ilmandi kökum. Svo ætlaði ég að nota tímann og taka nokkrar jólamyndir af þeim bræðrum - hér fyrir neðan sjáið þið afraksturinn!
 









En stóru fréttirnar eru kannski þær að Gunni er farinn að taka nokkur skref alveg sjálfur. Hann verður örugglega farinn að ganga um hérna um jólin. Svo fengum við líka þau gleðitíðindi að við fáum pláss fyrir Gunna 1. febrúar í leikskólanum hans Sigga! Það verður frábært að geta farið með þá saman og Gunni er líka orðinn svo heimavanur þarna, fer með mér tvisvar á dag og vill helst vera skilinn eftir með Sigga. Svo aðlögunin verður örugglega þægileg. Spennandi tímar framundan á nýju ári!

mánudagur, desember 02, 2013

Afmælishelgi með góðum gestum

Stóru strákarnir tveir áttu afmæli í lok síðustu viku og var haldið rækilega upp á það með heimsókn Nínu og Nenna frá Íslandi. Svenni eyddi reyndar afmælisdeginum í vinnuferð í Osló en heima bíðu hans góðar gjafir og kaka bökuð af Sigga. Hann vildi endilega baka nammiköku fyrir pabba sinn. Siggi fór svo sæll og glaður í leikskólann á afmælisdaginn sinn þar sem íslenskur fáni var hengdur upp í tilefni dagsins. Hann fékk kórónu og fékk að búa til smoothie handa krökkunum í drekkutímanum og var spenntur og glaður í lok dags. Á laugardaginn var svo haldið alvöru íslenskt pulsupartý með SS-pylsum og Valstómatsósu. Þetta var stór dagur fyrir litla manninn því hann fékk að bjóða vini sínum úr leikskólanum, honum Jonasi, og svo kom líka íslensk vinkona okkar, hún Hafdís.

 




Siggi skemmti sér konunglega og fékk margar góðar gjafir og Lego var þemað í þetta sinn. Svo nú situr hann stíft við með leiðbeiningarnar og setur saman allt flotta Legoið sem hann fékk. Í gær, fyrsta sunnudag í aðventu, skelltum við okkur í smá göngutúr niðri í bæ. Kíktum meðal annars í piparkökubæinn og jólahúsið niðri á Bryggen. Takk Nína og Nenni fyrir samveruna!