Vísindaferðin á föstudaginn var mjög vel heppnuð. Við fengum ýmsar gagnlegar upplýsingar um Stéttarfélag verkfræðinga - veitti ekki af! Og að sjálfsögðu voru veitingar í föstu og fljótandi formi ;) Að lokinni vísindaferð var hópnum smalað á Öresundskollegíið þar sem haldið var alveg frábært partý; ýmis íslensk partýtónlist hljómaði og meðal annars nýja Eurovision-lagið okkar! Ég sofnaði því með það lag á heilanum aðfaranótt laugardags.
Á laugardagskvöldið bauð Dísa okkur í Eurovision-partý. Rosa gaman að hittast og horfa saman á keppnina. Við vorum mjög sátt við Silvíu Nótt, hún er alveg frábær týpa, en mér fannst Regína alveg svakalega góð. Kannski var ég bara búin að fá nóg af "Til hamingju Ísland, með að ég fæddist hér..." sem ómaði í hausnum á mér nóttina áður. En það er ekki spurning að það verður spennandi og gaman að horfa á Eurovision í maí!
Í gærkvöldi komu Tóta, Helgi (bróðir Tótu) og Sigga (konan hans) í mat til okkar. Það var ansi huggulegt að fá þau til okkar í alvöru sunnudagsmat með ís í desert - gæti ekki verið betra! Við ætluðum auðvitað að bjóða þeim til okkar fyrir löngu, en þau skutluðu okkur út um allt fyrstu dagana okkar hér í Köben.
Og í gærkvöldi var einnig ákveðið hvar sumarfríið verður tekið í sumar! Undirbúningur hefur staðið yfir í nokkrar vikur, en Haffi, Brynhildur, Harpa og Beggi hafa haldið vikulega fundi um stöðu mála og legið á netinu í leit að húsum fyrir okkur. Við munum leigja okkur hús á Spáni - við Svenni verðum í eina viku en hin ætla að vera í tvær. Þetta er algjört draumahús; með einkasundlaug uppi í fjöllum! Okkur á eftir að líða eins og kvikmyndastjörnum liggjandi við sundlaugina með geggjað útsýni! Spenna, spenna, spenna...
11 ummæli:
Frábært, allt saman. Gott að eiga ljúfa daga.
Þið munið svo eiga smá aukaorku og senda mér frá Spáni. Þegar ég verð í ógó-prófum! Próf í MR stíl, engin hjálpargögn og námsefni síðustu tveggja ára ...
Ég þarf endilega að tengjast Létt, og reyna ná þessu blessaða Eurovision lagi ... hef ekki hugmynd um hvernig það er!
Oooo... ég var einmitt að segja við Svenna að mig vantar bikini! Hlakka líka alveg geðveikt til að vera með ykkur ;)
Jóhanna, við skulum senda þér alla orkuna sem við þurfum ekki að nota - og það verður slatti!
Hey - ekki gleyma mér! Ég vil smá sólarkveðju - ekki mikið þó, við sólin erum ekkert alltaf vinkonur ;)
Ætlar þú ekki að fara Tóta mín?
Stelpur, mæli líka með J. Crew bikiníum. Þið vitið annars að þið megið senda á mig og ég get sent heim ...
Nei Jóhanna, ég fer ekki með. Mín opinbera afsökun er að ég þarf að fara heim að vinna ;)
Takk Jóhann við höfum það í huga - ég þarf að leggjast í stúdíur og skoða J. Crew bikiníin...
Takk, Jóhanna! Rosa gaman að hafa svona mikið spjall í kommentunum ;)
Þetta verður svo gaman hjá ykkur ... það kemur að þessu fyrr en varir. Svo er bara spurning hvort svona ferð þýði að útlegurnar leggist af, nennir maður nokkuð að hírast í tjaldi eftir svona dekur!
Hlakka til að sjá myndir af ykkur skvísur með kokteila á sundlaugarbakkanum.
Nei - útilegurnar leggjast ekki af. Þið ameríkuhjón eruð ekki búin að sjá partítjaldið okkar sem reddaði öllu síðasta sumar!
Ég fer alla vega í útilegu í sumar og mér fyndist nú leiðinlegra að þurfa að fara ein!!!
Já, auðvitað! Jamm, ég veit, við "ameríkuhjón" eru allt of mikið út úr.
Gömlu, góðu útilegurnar munu aldrei leggjast af, það er ekkert sem getur komið í staðinn fyrir þær ;)
Skrifa ummæli