fimmtudagur, febrúar 28, 2008

De Hnerrum

Nú finnst mér vera kominn tími til að tjá mig um mál sem ég hef hingað til verið eilítið feiminn að kunngjöra. Þetta snýst um hnerra. Eða eitthvað þaðan af verra, herra.

Allavega, ég hef mikið gaman af hnerrum og ég hnerra hátt og snjallt og hef einnig þjálfað með mér tækni sem beinir meðfylgjandi loftstraum út um munninn frekar en nefholið. Hef mína tækni niður og allt, verð ekki kitlandi eða nokkuð. Eins og sumir lesendur þekkja, þá hlýst oft mikill sori af því að hnerra um nasir, og nægir að nefna Orku-Þrepskjöld þessu til stuðnings.

Ég, ásamt líklega öllum öðrum, lendi stundum í þeirri ógæfu að "missa" hnerrann sem nokkurn veginn það versta sem getur gerst, fyrir utan að gleyma að læsa dyrunum með saurbleytu og samstarfsmaður opnar. Það er sumsé það versta sem getur gerst.

Flestir sem missa hnerrann hafa líklega engra annarra kosta völ en að svekkja sig og sætta sig við að allir eru að hlæja að sér fyrir þessi undarlegu læti, án hnerrans.

Ég hef, reyndar fyrir þónokkru, leyst þetta vandamál. Hægt er að ná sér í hnerrann aftur með því einu að stinga tannstöngli upp í nefið, alldjúpt, og róta eilítið í bifhárunum. Þetta kallar strax aftur í hnerrann of laðar oft fram bónus-hnerra sem fylgir strax á eftir. Þetta er megintilgangurinn með Swiss-Army Knife-inum sem ég hef gengið með síðustu árin.

Ég átta mig á því að sumum kynni að finnast þetta ógeðslegt en ég hvet alla sem hafa fengið nóg af yfirgangi hnerra-örlagadísanna til að taka málin í eigin hendur og hnerra að vild héðan í frá.

mánudagur, febrúar 25, 2008

Góð Sumarbústaðarferð

Komst að eftirtöldu:
Þynnka er ekki eftirsóknarverð.
Humar er ennþá góður.
Satúrnus er svalur.
Runk-vasaljós er ótrúlega uppfinning.
Græni laserinn minn er mun meira töff en stjörnukíkirinn.
Strokkur er svalur.
Fjórir útlendingar virðast ekki getað áttað sig á því að rjúkandi vatn er ekki vatn til að stinga höndunum í.

þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Ófyndnar manneskjur

Fólk sem heldur að það sé línulegt samband milli hláturs og fjölda endurtekninga á punchline-inu. Dæmi:
Ófyndinn segir: Vitiði hvað hommar og lego eiga sameiginlegt?
Hinir segja: Nei.
Ófyndinn segir: Staflanleika!
Hinir segja: Hahahaha!!!
Ófyndinn segir: Staflanleika!
Hinir segja: Hehehe!
Ófyndinn segir: Þeir eru sko báðir staflanlegir.
Hinir segja: Já, einmitt.
Ófyndinn segir: Það er hægt að stafla þeim.
Hinir segja: Nú drepum við þig.

mánudagur, febrúar 04, 2008

Mikið grín, mikið gaman

Þetta gerðist síðan síðast
\begin{itemize}
Bíllinn fór í viðgerð.
Ég vann rakettumótið á Billanum.
Humar var étinn í aðalrétt hjá Haffa og Brynhildi. Takk fyrir okkur.
Ég vann fyrsta stigamótið í meistaraflokki 2008. Tryggvi Erlings tekinn 4-0, sáttur.
Samkvæmt spá, langar mig núna í kjuða, þrátt fyrir gott gengi í mótum. Aukabúnað vantar. Hef fundið hann. Mun fara til sverige.
Ákveðið var að fara til danaveldis og svíaríkis í mars.
Veiðileyfi í elliðaár, tvo eftir miðdaga í sumar, voru keypt.
\end{itemize}
Annars er ég búinn að komast í sama form í snókernum og ég var í áður en Guðlaug afvegaleiddi mig fyrir tæpum átta árum.
Frankenstein never scared me.