Ég hef mikið gaman af því að borða nammi. Sérstaklega hef ég gaman af því að borða snakk og kók, og raunar nokkurn veginn flest með kóki. Ykkur rekur því eflaust í rogastans þegar ég segi ykkur að ég hafi ekki enn fengið mér kók og hraun. Þetta er hins vegar staðreynd.
Anyway. Ég er sumsé ekki alveg orðinn góður í golfi. Tók um daginn Selfossvöllinn með Begin og Kaffinu og fór hann á 69 höggum, en síðast fór ég hann á 60 höggum. Þessu skelli ég algerlega á déskotans driverinn sem er hættur að vera vinur minn. Hola 2 var tekin á 14 höggum með heilum þremur penalty déskotaeindum.
Déskotaeind. Skrýtið orð sem lýsir atburði, hlut eða jafnvel ástandi sem má til fjandans fara.
Gyða (ofsafengna) kom í heimsókn um daginn að vitja ástandsfrystis síns (ástandsfrystir=myndavél) og kom það upp á daginn að hún ætlar að taka golfingsflokk á þetta svo að ég lagði til að Stuðlaugin djoínaði og lagðist sú tillaga bara vel í krádið. Þetta tel ég að auki líkurnar á því að ég og Stuðlaugin gætum stundað boltatýnslu saman. (Já með ypsilon-í-i) Markmiðið er að týna boltanum í holunni, ik'?
Jæja nú er nóg komið. Killingsflokkur. Mávahlíðarsyndrómið. Skaufaberg. Jói teik.
3 ummæli:
Svenni! Ertu hræddur við mig???!! Múhahahahaha
Btw þá er ég gestur númer 888!
Mikið er gott að heyra að þú hefur ekki breyst í dkinu
En hvað með síra Dúnda?
Skrifa ummæli