mánudagur, júní 18, 2007
föstudagur, júní 15, 2007
Óvænt helgarfrí í Stokkhólmi
Ég skellti mér óvænt í stutta helgarferð til fjölskyldunnar í Stokkhólmi um síðustu helgi. Sara átti ekki von á mér og má segja að henni og Söndru hafi brugðið þegar ég birtist skyndilega inni í forstofu hjá þeim ;o) Þetta tókst svo fullkomlega!! Það var yndislegt að vera hjá þeim eins og alltaf. Börnin stækka úr grasi og Sandra er farin að standa upp og príla upp í tröppur - fjör á þessu heimili!
Fjölskyldan að borða úti á pallinum góða.
Sundlaug með ísköldu vatni til að kæla kroppinn.
Sandra vildi auðvitað vera með í fjörinu.
Sandra prinsessa :o)
Annars er það í fréttum að Gústi, sem ég er að vinna verkefnið með, var að eignast tvíbura í vikunni - stelpu og strák - innilega til hamingju! Svo það er smá rólegheitavika núna áður en við tökum lokasprettinn. Pétur er búinn að vera hjá okkur í tvo daga og við fórum á flottan tælenskan veitingastað í gærkvöldi og nutum veðurblíðunnar við Nyhavn. Mjög gaman að fá hann í heimsókn svona títt, hann er orðinn hálfgerður heimilisköttur hjá okkur.
Á morgun eru víst 17. júní hátíðahöld á vegum Íslendingafélagsins - finnst ykkur ekki eitthvað skrítið við það?!? Veit ekki hvort ég tek þátt í svona vitleysu, enda spáir hellirigningu á morgun og strandhátíð er ekki það fyrsta sem manni dettur í hug!
þriðjudagur, júní 05, 2007
Grasekkja...
Á morgun heldur húsbóndinn til veiða á Íslandinu góða - hann færir vonandi björg í bú! Vá, en þjóðlegt eitthvað hjá mér. Vantar bara að ég prjóni lopasokka og borði slátur á meðan hann er í burtu. En já, Svenni er sem sagt að fara til Íslands til að veiða í Laxá í Mývatnssveit. Mikið öfunda ég hann!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
