þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Funky, stuttur draumur

Ég var að vakna. Enginn skóli á tirsdögum. Mig var að dreyma að Gróa, soon to be milf, og kærastinn hennar, ekki Bjöggi heldur réttarlæknirinn í CSI New York voru í heimsókn hjá okkur. Ég var að fara að raka mig með minni philips og Hill Harper spurði mig hvort hann mætti prófa. Ég leyfði honum það, sá að skeggið fór af hægri vanga hans (the tested area) og svo sýndi ég Gróu á hægri vanga mér og hún sagði, já þetta virkar bara vel.
Allan tímann var ég samt að bölva mönnum með skeggrót í hljóði og var alveg sannfærður um að Gróa sæi ekki neitt discontinuity milli vangans og restarinnnar af andlitinu.
Þegar ég vaknaði fór ég bara að klippa nefhárin, sem virðast ekkert vera jafnilla dreifð. Af hverju eru nefhár ekki svona macho-look-giving-stuff? Þá gæti ég verið ultra kúl.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nei, veistu Svenni mér hefur alltaf þótt nasahárin þín gríðarlega sexý. Hef bara ekki kunnað við að segja þér það fyrr.