fimmtudagur, nóvember 05, 2009

Hættu að reykja, eeekki reykja meira

Nú er kominn tími til að allir sem finnast þeir skipta einhverju máli hætti að reykja. Það er orðið vel þreytt að horfa á eftir fólki í krabbamein sem læknar segja tvímælalaust að sé af völdum reykinga.

Uppáhaldsfrændi minn var að deyja í morgun og það er alveg ömurlegt og það er ekki skrifa þetta en ég get ekki orða bundist núna. Hann reykti allan þann tíma sem ég þekkti hann og loksins gafst líkaminn bara upp fyrir ágangi krabbameins sem fékk að leika lausum hala vegna þess að öll líffæri sem hefðu átt að hindra eða allavega hægja á framgöngu þess voru orðin léleg vegna áralangra reykinga.

Ég fór um daginn í viðtal hjá Allianz til að reyna að fjárfesta í einhverju ótengdu krónunni og sölumaðurinn sem ég talaði við sagði að nú væri kominn tími til að huga að líftryggingu þegar von er á barni. Allt sem hann sagði við mig var alltaf með skilyrðinu, að því gefnu að þú reykir ekki. Það gilda bara ekki sömu reglur um reykingamenn þegar kemur að líftryggingum, þeir annaðhvort fá ekki líftryggingu eða hún kostar langtum meira en hjá þeim sem reykja ekki.

Svo má ekki gleyma því að það að kyssa reykingamann er ekki ósvipað því að láta berklasjúkling æla upp í sig kverkaskít, blóði og galli blönduðu hlandi.

Plís, hættið öll að reykja. Þetta er ekki sniðugt og þetta endar eiginlega alltaf illa.

Ég vona að ég særi engan með þessu en ég meika ekki svona vitleysu lengur.