fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Nyheter av Ingienörene

Ég og Guðlaug erum loksins bæði búin að ákveða mastersverkefni. Guðlaug mun hanna mjög kewl hús og ég mun pæla í 4D material science.

Rafnar og Sólveig buðu okkur í mat í gær, Tyksteg, gott. Mig langar núna í lambakótelettur vegna þessað Rafnar nefndi kallamat og þá varð mér hugsað til þess þegar ég, Pabbi og Willy hinn freki fengum ca. 30 kótelettur, steiktar að Pabba sið, þ.e. með miklu smjöri í tvo tíma við 200 gráður, með soðnum kartöflum. Það var gott.

Slayer eru mestu töffarar sem ég hef nokkurn tímann séð, fyrir utan Erling náttúrulega. Ég notaði eyrnatappa á tónleikunum í Malmö, sem er alls ekki svo vitlaust.

Keane tónleikarnir voru alveg frábærir líka, eiginlega skemmtilegri því ég var umkringdur mun fallegra fólki þar, og maður víst bara mjög hégómagjarn. Tryggvi bætti þó aðeins upp Slayerinn með innilegum hlátrasköllum vegna gúmmítöffara með túss á handleggjunum.

Nú hef ég farið á Anthrax, Metallica og Slayer sem ansi vel af sér vikið fyrir svona graðhest eins og mig. Vantar bara að fara á Megadeth og Pantera, en það verður víst aldrei að veruleika. Rust in Peace Dimebag.

Það er allt of mikið að gera í skólanum. 5 tíma svefn er að verða staðallinn og ég á að skila tveimur stórum ritgerðum þann 8.desember. Svo verður próf á 12. des og þá er ég búinn en Guðlaug á þá eftir níu daga og þrjú próf.

Svo verð ég að fara að finna mér golfsett fyrir afmælispeninginn. Ekki verður það leiðinlegt fyrir jólin.

Well, verð að fara að fá mér að borða einhvern danskan óþverra.

2 ummæli:

Gróa sagði...

Hæ elskurnar mínar.

Ég ætla að skreppa til Köben á þriðjudaginn næsta.
Á ég að koma með eitthvað góðgæti handa ykkur?
Lambakótelettur - kannski, Svenni átvagl ???

Nafnlaus sagði...

Ég myndi nú barasta fjárfesta í nýrri veiðistöng, sleppa alveg golfinu því það er stórhættulegt. Er sjálfur að hugsa um að mig vantar tvíhendu. Bráðvantar.