miðvikudagur, mars 05, 2008

Viðskiptahallinn aukinn enn frekar

Var að kaupa mér kjuða frá dinglandi. Hevíti flottur kjuði sem er vonandi jafngóður og hann lítur út fyrir að vera. Ég er einmitt að spila eins og Bragi núna svo að það er fínn tími til að skipta um kjuða. Veit samt ekki alveg hvort ráðlegt sé að skipta á kjuðanum rétt fyrir Íslandsmeistaramótið en það ræðst af því hvort Sara geti komið með kjuðann á laugardaginn eða hvort ég sæki hann sjálfur til svíaríkis eftir tre vokkor.

Svalur Kjuði

Annars er það helst að frétta af mér að ég er búinn að skipta um hringitón á símanum svo að nú ómar Bucephalus Bouncing ball í hvert sinn einhver hringir í mig. Veit ekki alveg hvort Aphex Twin hafi gert ráð fyrir því en tónninn virkar vel, eiginlega bara eins og svín. Dáldið hringitónaleg músík hjá honum og Squarepusher.

Já einmitt, kvöldmaturinn í gær innihélt ekkert kjöt og ég borðaði hann af bestu lyst. Skal samt ekki gert tvo daga í röð. Spurning hvort ekki megi setja fram lemmu: One can always add chicken.

Upphafið er í bænum til 10. mars, spurning um að slátra því í snóker kannski.

Spurning dagsins: Hvað er meira Breakfast of Champions en harðfiskur með smjeri?

Annað mál: Finnst þér myndin af kjuðanum vera skökk?