fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Á Spán' er gott að djamma og djúsa... lalala...

Ég vildi bara sýna ykkur hvert við erum að fara í sumarfrí - kíkið hér!

Verðum í rétt rúma viku í byrjun júní með Hörpu, Begga, Brynhildi og Haffa. Þetta er þá helmingurinn af vinahópnum góða; vantar Tótu, Jóhönnu og Palla Ameríkubúa, Sigrúnu, Erling og Brynhildi Ingu. Vildi nú óska þess að við gætum verið öll, en við munum nú öll hittast í sumar og taka kannski eitt stykki útilegu - þær klikka ekki!

Annars er lærdómshelgi framundan, ekkert krassandi í þetta skiptið. Góða helgi, kæru vinir!

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bíddu...er ég ekki í vinahópnum?

Guðlaug sagði...

Nei, Ingvar minn, og hefur aldrei verið ;)

Nafnlaus sagði...

En ég? Má ég sækja um stødu i vinahópnum? En má ég sækja um hitting? Ég var nefninlega ad spá hvort vid ættum kannski ad hittast og gera e-d e-n tímann.
Heyrumst kannski.
Hilsen
Hildur Björk svennafrænka
ps. let me know i sambandi vid inngøngu i vinahopinn, dato f inntøkuprof osv., væri alveg til i ad skella mer til spanar...

Nafnlaus sagði...

Hahaha, Tad eru engin vettlingatok tegar Ingvari er sagt ad hann tilheyri ekki hopnum:) Annars rikir mikil ofund tegar litid er yfir myndirnar af pleisinu. Hvad er tetta bara eitthvert Hollywood Star resort?

Guðlaug sagði...

Já, dugar ekkert minna fyrir okkur! Við lítum náttúrulega út eins og kvikmyndastjörnur. Paparazzarnir verða eflaust mættir á svæðið þegar við lendum á flugvellinum...

Gaman að sjá að þú kíkir við á síðuna hjá okkur, Hildur Svennafrænka. Við skulum endilega hittast fljótlega - verðum í símasambandi ;)

Nafnlaus sagði...

allrighty,heyrumst
Hildur Björk svfræ

Nafnlaus sagði...

Flott villa sem þið ætlið að vera í.