þriðjudagur, mars 28, 2006

Afmæli, árshátíð, heimsóknir...

gæti bara ekki hljómað betur! Gróa vinkona á afmæli í dag - innilega til hamingju, snúllan mín! Og svo er hún nú barasta að koma til Köben á morgun!!! Mikið hlakka ég nú til að sjá hana og kannski kíkja út að borða ;) Og svo kemur Gyða eftir viku!

Um helgina var árshátíð Íslendinga í DTU haldin í Jónshúsi. Hún var ofsalega vel heppnuð og stelpurnar í stjórninni stóðu sig eins og hetjur við að dekka borð, bera fram matinn og að sjálfsögðu að þrífa. Klapp fyrir þeim! Eftir matinn var svo haldið á hinn vinsæla stað Pilegården þar sem Íslendingarnir tóku yfir staðinn með tilheyrandi ærslagangi, látum og "uppsölum"... nefni engin nöfn. En við skemmtum okkur allavega konunglega þó að Dönunum hafi ekkert litist á þessa brjálæðinga!

Svo er það 5 manna matarboð í kvöld!

Engin ummæli: