miðvikudagur, febrúar 08, 2006
Enn kemur kerfið hér á óvart!
Eins og sönnum námsmönnum sæmir biðum við með óþreyju eftir námslánunum okkar. Á mánudaginn var svo kominn eindagi á húsaleiguna og þá átti hið kæra, kæra mastercard að koma til aðstoðar - eins og svo oft áður. Leið okkar lá því í útibú Danske Bank hér í skólanum. Þegar kom að því að greiða reikninginn sagði gjaldkerinn: "Er þetta íslenskt kort? Já, við tökum ekki svoleiðis hér. Þið verðið að fara niður í Lyngby." Þjónustan í hámarki! Hver hefur heyrt um að BANKI taki ekki hin og þessi kreditkortin?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ha, fáránlegt. Það er örugglega fleiri Íslendingar sem hafa reynt þetta.
Annars er ekki hægt að borga skólagjöldin í CMU og Pitt með kreditkortum, vegna þess að það kostar skólana svo mikið á hverja færslu, þetta eru svo stórar upphæðir! Báðir skólarnir hafa sparað milljónir dollara síðan þeir hættu að taka við kreditkortum og kreditkorafyrirtækin tapað!
Frábært! Danmörk er eins og bananalýðveldið Kenýa, þar taka þeir helst bara visa! Hélt að DK væri nú kannski skrefi framar.
Merkilegt nokk er líklega besta þjónusta í öllu á Íslandi (jafnvel þótt starfsfólk sé heldur ókurteist). Í Hollandi var ekki einu sinni hægt að borga reikninga í bönkum - bara með því að senda ávísun í pósti!
Skrifa ummæli