Við erum farin að njóta þess almennilega núna að hér er hægt að kaupa dýrinds hráefni og mat. Í gærkvöldi eldaði Svenni ljúffenga svínalund með sveppasósu og ofnbökuðum kartöflubátum, namm! Ég gerði salat með og í það voru náttúrulega sett jarðarber. Afgangurinn af þeim var svo borðaður með ís í desert. Ljúffengur matur fyrir mjög lítinn pening. Kílóverðið á kjöti hér er hlægilegt. Það fer yfirleitt ekki yfir þúsundkall íslenskar! Og kjúklingur er ennþá ódýrari!!! Talandi ekki um hvað bjór og léttvín er ódýrt; kassi af Tuborg í gleri á 90 kr. danskar!!! Maður fengi ekki einu sinni kippu fyrir sama pening heima.
Tóta var í heimsókn hjá okkur áðan og skruppum við í bakaríið og keyptum nýtt kúmenbrauð og snúða. Algjört sælgæti ;) Tóta er búin að vera á bíl bróður síns um helgina svo hún hefur komið oft í heimsókn, mjög huggulegt.
Annars er allt að falla í vana hérna hjá okkur. Við erum vonandi búin að fara okkar síðustu ferð í Ikea í langan tíma, en við fórum í gær og keyptum gardínur í svefnherbergið. Við þurfum bara að byrja að læra, en það er alltaf jafn erfitt að komast í gang eftir sumarfrí.
Við fórum á Strikið á föstudaginn með Tótu og við vorum öll mjög dugleg að versla. Svenni keypti handa mér útskriftargjöfina (loksins!) en það er rosa flottur leðurjakki. Svo keyptum við okkur aðeins af fötum. Ég fann einmitt fína Esprit búð, en það er nýjasta æðið hjá mér ;)
Jæja, nóg í bili. Við látum heyra frá okkur fljótlega aftur. Farin að lesa!
P.s. Ég setti inn nokkrar myndir af matnum ;)
7 ummæli:
Já takk fyrir mig. Ekki verra að koma svona í morgun/hádegismat út í bæ. Svo rokkar Nutella líka!!!
Heyrðu - ég er einmitt líka með Espritt æði núna ;)
Haha! Brillíant!!! Thá vitum vid hvad vid gerum thegar ég kem í heimsókn ;)
Vá auðvitað :oD
Hvenær ætlarðu annars að koooooma??
Kannski komum við fyrstu helgina í október... ;)
Við eigum von á gestum á sunnudaginn og svo verður Tinna, systir hans Svenna, í Köben helgina þar á eftir.
Hljómar mjöööög vel :o*
Skrifa ummæli