miðvikudagur, september 07, 2005

Ég vil líka

Ég mun líklega ekki vera mikið í skrifiríinu, enda er ég ekki nægilega væminn til að geta skrifað svona sæta pistla. Ég er í fríi á föstudögum, ekki Guðlaug, svo að ég sef út í íbúðinni okkar. Rúmið okkar er mjög þægilegt svo að ég verð ekkert þreyttur í bakinu eða nokkuð þannig ef ég sef í yfir 10 tíma. Það er gott. Núna verð ég að hætta þessum gríðarhressa pistli vegna þess að Guðlaug þarf að nota tölvuna.
Be cool. Stay in school.

Engin ummæli: