1. Á Júpíter er þungdarhröðunin 2,5 sinnum meiri en á jörðinni. Því væri vont að detta þar. En það er heldur ekkert yfirborð á honum svo maður myndi ekki lenda og meiða sig.
2. Ég er ofsalega fyndinn, samt fatta það ekki allir.
3. Ég hef ekki downloadað neinu rugli í 0,5 ár. Rosalega er það langur tími. Eða mikill?
4. Uppáhaldsmaturinn minn í Baunalandi er kjúklingasalat, sem er mjög skrýtið. Eða undarlegt?
5. Það er mjög létt að mana mig í að gera svona hluti. Þ.e. ég er alltaf tíl í smá keppni. Vill alltaf vera betri en hinn. Ég vona til dæmis að þetta klukk sé sniðugara en klukkið sem Sara blóg. Eða bloggaði?
Klukk á sumsé að virka þannig að maður dembir fram fimm staðreyndum og þeir sem lesa eiga að gera slíkt hið sama.
P.S. Ég hef aldrei viljað fara á djammið, svo að mér finnst bara Sara vera mjög heppin.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli