Það hefur verið mikið stuð hjá okkur þessa helgina. Á föstudagskvöldið var okkur boðið í grillpartý með Íslendingunum hér á kollegi-inu. Það var mjög gaman að kynnast þeim en hér eru níu íslensk pör að okkur meðtöldum. Hin pörin eru þó öll komin með börn eða eru með barn á leiðinni. Nokkur eru líka að klára námið nú í vetur svo þau fara heim í vor. Grillveislan var haldin í "center"byggingunni sem tilheyrir kollegi-inu og þar er fín aðstaða til að halda smá partý og afmælisveislur kannski.
Í gær var ferðinni heitið í Tívolí. Tívolíinu verður lokað fyrir haustið 25. september svo við Svenni og Tóta ákváðum að drífa okkur til að ná því fyrir lokun. Það var gríðarlega gaman hjá okkur en við vorum frá tvö til tíu um kvöldið! Og nánast allan tímann í tækjum ;) Við keyptum okkur túrpassa sem gildir þá eins oft og maður vill í öll tækin. Svenni og Tóta voru ótrúlega dugleg og fóru í 17 ferðir hvort!!! Ég fór nú ekki nema átta ferðir en mér fannst það sko alveg nóg! Svenni og Tóta fóru meira að segja að í fallturninn, sem er ca. 60 m hár turn sem fólk er dregið upp í topp og svo bara látið detta niður! Ekki mín tegund af skemmtun ;)
Í augnablikinu erum við Svenni að bíða eftir Írisi og Benna, en þau eru nú lent á Kastrup flugvelli og eru líklega að fara í lestinu til Vedbæk eftir nokkrar mínútur. Jobbi vinur þeirra hér á kollegi-inu ætlar að sækja þau á lestarstöðina og skutla þeim til okkar. Svenni bakaði köku af þessu tilefni og fá þau því nýbakaða köku og ískalda mjólk - eða bjór - þegar þau koma. Vona að þeim líki það ;) Þau munu svo fara snemma í fyrramálið til Svíþjóðar en koma aftur á föstudaginn og verða hjá Jobba um næstu helgi. Þá fáum við nú líka aðeins að hitta þau aftur. Gaman að fá fyrstu heimsóknina hér í Köben! Næsta föstudag mun svo Tinna koma í heimsókn - gaman, gaman!
Ég er búin að setja inn myndir - njótið!
P.s. Í gærkvöldi var 3 stiga hiti úti - og hitinn er ekki kominn á! Þannig að okkur var bara nokkuð kalt í nótt!!!
5 ummæli:
Já þetta var mega-gaman! Hálsinn er að jafna sig eftir öskrin miklu en ég er alveg að drepast í öxlunum eftir öryggisbeltin í tækjunum. Held að ég hafi verið aðeins of mikið á hvolfi í gær;)
Oh en æðislegt, öfunda ykkur bara of mikið. Ekki mikið að gerast á skerinu þessa dagana, ekkert tívolí og engar grillveislur! Gaman að geta fylgst með ykkur skötuhjúunum í kóngsins Köbenhavn. Við verðum að koma og heimsækja ykkur í vetur.
Kveðja,
Ingalillý
Vá hvað mig langar í tívolí :)
Vona svo að hún Íris hafi munað eftir að koma með pilsið þitt! Ég sendi hana nefnilega með það :)
Sælt veri fólkið!
Vildi bara láta ykkur vita að við Pawsi verðum líklega með afmælis-partý þar næstu helgi (s.s. 30sta sept eða 1sta okt). Ef þið tvö og Tóta eruð geim endilega látið sjá ykkur! Annars búið þið náttúrlega svo langt í burtu að þið komist aldrei neitt:=)
Takk fyrir það!
Við búum ekki svo langt úti í sveit, við búum bara úti í rassgati... ;)
Skrifa ummæli