Þessi helgi er búin að vera alveg frábær!!! Vikan byrjaði á því að Íris og Benni gistu hjá okkur aðfaranótt mánudags og þau héldu til Svíþjóðar á mánudagsmorgun. Vikan leið svo nokkuð hratt því við áttum von á góðum gesti á föstudag og spenningurinn orðinn nokkur. Í hádeginu á föstudag hringdi dyrabjallan og fyrir utan hjá okkur stóð Tinna! Við buðum henni upp á heita kæfu og rúgbrauð og Svenni var búinn að baka köku að hætti þeirra systkina. Tinna skoðaði húsakynni okkar vel og leist henni mjög vel á. Að loknu spjalli og kökuáti tókum við lestina niður í miðbæ. Þar röltum við um á Strikinu og kíktum í nokkrar búðir, en Tinna hafði náð að versla nánast allt sem hún ætlaði daginn áður. Svo við vorum bara í rólegheitum ;) Tinna kom hingað með vinkonu sinni til að heimsækja vinkonu þeirra. Þær hittum við svo um kvöldið og borðuðum öll saman á Strikinu um kvöldið. Það var alveg frábært!!! Það var svo notalegt að vera með Tinnu í HEILAN DAG! Eitthvað sem maður gerir ekki á Íslandi. Þessa helgina áttaði ég mig fyrir alvöru á því að við búum hérna...
Á laugardag fengum við svo símhringingu frá Írisi og Benna en þau voru þá kominn aftur til Köben og gistu nú hjá vini Benna hér á kollegíinu. Við fórum þá með þeim í smá innlit til Tótu og svo fórum við öll niður í bæ. Við röltum aðeins á Strikinu og fórum svo í Tívolí! Það var mjög gaman - eins og alltaf - en sérstaklega var skemmtilegt að Íris var að fara í fyrsta skipti í rússibana!!! Hún byrjaði reyndar á að fara í frekar ógeðslegt tæki með Tótu og Svenna tívolíbrjálæðingum, en hún jafnaði sig fljótlega á því. Við vorum nokkuð dugleg og fórum í alla rússibanana og sumir fóru meira að segja í fallturninn! Um kvöldið borðuðum við svo á huggulegum ítölskum stað rétt hjá Strikinu. Eftir daginn vorum við öll mjög þreytt og fegin að komast heim í rúmið.
Þessi helgi hefur því verið alveg æðisleg! Það var frábært að hitta ykkur öll, Tinna, Íris og Benni. Þúsund þakkir fyrir samveruna! - Myndir eru komnar á myndasíðuna ;)
Framundan er svo skólinn og kominn tími til að læra fyrir alvöru. Við ætlum að skreppa til Söru systur í Stokkhólmi um næstu eða þarnæstu helgi - fer allt eftir hvernig okkur gengur að læra. Hjá mér er nefnilega smá próf í einu faginu í næstu viku, svo ég þarf kannski að læra um helgina - sjáum til... Ég hlakka allavega rosalega til að hitta systur mína og drengina hennar, svo við förum eins fljótt og við getum!
Bless í bili!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli