Já, ekki er mikið um fréttir svona um miðja vikuna. Lífið er komið í nokkra rútínu núna svo virkir dagar hjá okkur snúast um að fara í skólann, læra kannski pínu, fara í búðina, elda matinn, þvo þott, glápa á sjónvarpið... bara þetta venjulega. Við erum rétt farin að venjast því að búðin lokar klukkan sex eða sjö, ekki klukkan níu eins og heima. Við komum heim úr skólanum um hálfsex og svo brunum við á hjólunum í búðina. Tekur reyndar ekki nema fimm mínútur að hjóla. En Danirnir eru mjög stundvísir á lokun og þeim líkar ekki að maður skríði inn í búðina rétt fyrir lokun. Danir eru í raun mjög ólíkir Íslendingum, eins og flestir vita kannski eru þeir mjög "ligeglad" og þeim finnst ekkert mál að láta mann koma aftur og aftur í bankann, til dæmis, til að fá eitt stykki debetkort. Og það er nú ekki svo auðvelt heldur! Þ.e. að fá debetkort. Við þurftum að sýna fram á að við værum með kreditkort frá Íslandi og þá gátum við fengið debetkort. Annars hefðum við bara fengið hraðbankakort! Alveg út í hött!
Um helgina ætlum við að kíkja í Tívolí. Það lokar fyrir veturinn eftir 10 daga svo það er ekki seinna vænna að skella sér í rússíbanann ;) Annað kvöld er svo grill með Íslendingunum á kollegi-inu okkar. Það verður örugglega gaman að kynnast þeim sem hér eru fyrir. Á sunnudagskvöldið tökum við svo á móti Írisi, sem var með mér í bekk, og kærastanum hennar. Þau ætla að gista hjá okkur í eina nótt, en þau fara til Svíþjóðar á mánudagsmorgun. Við sjáum þau sem betur fer meira en þetta því þau koma aftur á föstudag en verða þá hjá öðrum vinum sínum sem búa á hér á okkar kollegi-i.
Veðrið hér hefur farið versnandi og er bara búið að vera jakkaveður núna í 2 daga! Það þýðir líka að það er farið að kólna inni hjá okkur, og ég er farin að sitja með teppi á kvöldin. Reyndar segja veðurfréttirnar að það eigi að hlýna aðeins aftur, svo haustið er ekki alveg komið ennþá.
Jæja, ég er farin út í þvottahús að þvo og svo er það ER ;) Heyrumst seinna!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli