Best að blogga eitthvað...
Ég er núna í tíma, ekki enn að fylgjast með. Ég á voðalega erfitt með að fylgjast með í þessu vegna þess að kennarinn virkar eins og Þorsteinn Vilhjálmsson, sá merki eðlisfræðijöfur. Annars er þetta í fyrsta sinn sem ég blogga á þessari tölvu, þ.e. nýju tölvunni minni.
Hún er alveg þokkaleg. Alls konar töff fídusar, eins og t.d. fjarstýring og DVD skrifari. Annars er ég ekki alveg sáttur við batteríið, það endist ekki nema þrjá tíma sem er tveimur minna en hin. Þess vegna hef ég fengið leyfi hjá Stuðlauginni til að kaupa stærra batterí í hana, 12-sellu í stað 6-sellu. það ætti að láta hana, tölvuna ekki Stuðlaugu, duga í allt að 8 tíma, sem er svakalegt. Ég mun samt alveg sætta mig við sex tíma. Það er líka þægilegt að vera með svona mikið pláss. Ég er með 36,5 GB af músík og alla Blackadder og Fawlty Towers inni æa desktopinu til að stutta mér stundir ef ég nenni ekki að læra.
Þraut: Er hægt að mæla Snæland og ef svo er, hver myndi vera einingin á Snæland?
Takmark þessarar þrautar er að gera samskipti milli karlmann skiljanlegri. Dæmi: Gunni segir við Sigga, "Mér tókst að fá að kaupa Porsche 911S, en það tók 34,6 kSnælönd á konuna." Gunni segir: "Nú! Ég þurfti eingöngu 15 kSnælönd til að fá BMW M5."
Skýring fyrir þraut: Flestir karlmenn í sambandi kannast við það að þurfa að réttlæta ýmislegt fyrir konunni. Dæmi um þetta er t.d. ef karlmanninn vantar nauðsynlega veiðistöng en konan telur að peningunum væri betur varið í eitthvað annað, s.s. garn, nálar eða tvinna og gefur því ekki leyfi fyrir viðkomandi hlut, nema gegn tímasekt. Það krefst kunnáttu að ná sínu fram og getur krafist þess að maðurinn lofi einhverju í staðinn fyrir viðkomandi bón hans. Það fer eftir hlutum hvað mikið þarf að leggja á sig, t.d. ný tölva þarfnast meiri sannfæringarkrafts, [Snæland], en notuð veiðistöng.
6 ummæli:
Það er greinilegt hver ræður á ykkar heimili... hahaha ;)
Það er náttúrlega alveg óþolandi hvað Guðlaug þarf alltaf að vera að sauma og prjóna svona mikið!
Gastu ekki komið með betra dæmi en garn, nálar og tvinna?
Held þú þurfir nú frekar að hafa fyrir þvi að fá Guðlaugu til að kaupa garn og tvinna!!! Amk mundi ég fekar kaupa tölvu en garn ;) Þú hefðir nú getað tekið betra dæmi... skó föt!?!? Konan þín mundi MIKLU frekar eyða pening í skó en garn!!! ;) hahaha Farið nú að koma heim langar svoooo að hitta ykkur. Kveðja ú morknum próflestri :( Fríður (sem mundi sennilega kaupa sér skriljón MAC glossa og pilgrim eyrnalokka áður en peningarnir færu í garn!!!)
Ein spurning. Hvaðan er nafnið á einingunni Snæland komið?
Það er ekki jafn auðvelt að átta sig á því hvaðan það kemur og til dæmis Newton, því flestir vita að það var nefnt eftir manninum sem fann upp eplið.
Ég er engu nær með Snælandnafnið
...en varðandi Standard International einingar þá vil ég bæta við fjarlægð [m] til að geta metið hraða [m/s]
EP skalinn er mælikvarði á leiðindi, það er ekki alveg rétta að þetta sé 0-1 skali, það er fræðilega hægt að vippa sér yfir 1. Uppruni skalans er sá að maður sem nefndur var EP var fokkíng leiðinlegur, svo leiðinlegur að það var auðmælanlegt og þá vantaði auðvitað góða einingu fyrir leiðindi, sá sem hefur 0 EP er ekkert leiðinlegur og viðmiðunin er sett á 1 fyrir jafnleiðinlegur og EP sjálfur. Fólk verður að átta sig á því að 1 EP er mjög stór eining, svona svipað eins og Tesla. Útreikningar mínir virðast benda til þess að Jóhann hafi verið 1.07 EP og er það fáheyrt.
Skrifa ummæli