mánudagur, nóvember 14, 2005

Gaman! Gaman!

Það var íslendingadjamm um helgina. Eins og við var að búast þá var ég í pool allt kvöldið og lenti í tvímenningsspili með strák sem er ekki jafn góður í pool og ég. Hann er reyndar ekki heldur jafngóður og hópur af heyrnarlausum leðurblökum sem varð til þess að við töpuðum tvisvar í röð. Seinni leikurinn fór þannig að ég var búinn að hitta öllum kúlunum okkar og hitt liðið engum af sínum og hann átti að hitta svörtu niður en hann hitti ekki í fyrstu tilraun heldur fór hvíta í hana af batta og setti hana niður í vitlaust gat. Frábært!
Eftir djammið var tótan ekki í ökufæru ástandi þannig að ég fékk að keyra bílinn hans Helga, bróður hennar. Það er BMW 520i, með L6 mótor. Það er svo gott að keyra þennan bíl að ég vil núna eiga eins bíl. Það er einhvern veginn allt svo solid í honum. Ég skil núna af hverju CAR elskar alla BMW bíla.
Við erum að fara að kaupa aðra tölvu. Hún verður einnig frá HP; Pavillion dv4000.
1.7GHz Pentium M 2MB cache
1024MB RAM
80GB HD
DVD skrifari með Lightscribe (*)
4 USB2.0 og 1 Firewire 4pin
6in1 kortalesari
1280X800 skjáupplausn
(*) Lightscribe er tækni sem gerir manni kleift að merkja diskana í drifinu sem maður skrifar á þá. Maður skrifar í þá, tekur þá út, snýr þeim við og skrifar á þá. Massatöff!

Ég er núna glaður. Það er fátt sem gleður mig jafnmikið og að kaupa flottar græjur.

Þraut: Þekkir þú einhvern sem er betri en ég í Pool?

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég man að ég vann þig í pool úti á Benidorm á Tókakvöldinu;)

Nafnlaus sagði...

En annars nei. Þú ert bestur og ég dýrka þig...

Nafnlaus sagði...

nei, þekki ekki neinn sem ert betri en þú í pool ;-)

kveðja, Jóhanna

Nafnlaus sagði...

Hvað meinið þið með "Rassgatið á Grétari" og "Svarta kúlan í vitlaust gat"?

Nafnlaus sagði...

Annars var ég að pæla svona í alvörunni. Hefurðu einhvern tímann spilað við Fjölni?

Nafnlaus sagði...

Ég fer ekki inn á þetta blogg til að lesa um pool ;) hihi Komið að þér að blogga Guðlaug mín :) hvenær komiði svo heim um jólin...

Nafnlaus sagði...

Eg kem heim liklega i kringum 18. Des.