Ég er búin að setja inn myndir frá helginni. Steina hefur verið hér í Köben í árshátíðarferð með vinnunni. Ég var reyndar veik daginn sem hún kom en harkaði af mér og við Tóta fórum með henni í verslunarleiðangur á föstudaginn. Á laugardaginn fórum við svo út að borða með nokkrum vinnufélögum Steinu og á Sálina. Þar hittum við svo ótrúlega marga sem við þekktum - enda kannski ekki skrítið þar sem um 1500 Íslendingar voru á staðnum. Við hittum m.a. Jóa meistara, Kristínu ex-VSÓ gellu, gamla skólafélaga úr MR og marga fleiri. Í gær höfðum við það svaka notalegt og kíktum með Steinu á Strikið og fórum á kaffihús við Nyhavn. Héldum svo öll í sveitina og elduðum rosa góðan mat. Það var alveg æðislegt að vera með henni Steinu okkar!
En lesið endilega bloggið frá Svenna hér að neðan - loksins kom eitthvað frá honum ;-)
2 ummæli:
Ástarþakkir, knús og kel fyrir góðar móttökur og skemmtilega daga í Köben :)
Þið eigið inni aaaagalega fínt matarboð heima hjá mér á klakanum!
Sjáumst :*
Oh, hvað ég hlakka líka til að koma heim! Mest hlakka ég til að koma í heimsókn í nýju íbúðirnar ykkar, skvísurnar mínar ;)
Skrifa ummæli