Vá, hvað ég er farin að hlakka til að koma til Íslands um jólin! Við tökum síðasta prófið okkar 21. des og lendum því ekki á Íslandi fyrr en kl.22:10 22. des. Svo förum við aftur út á nýársdag því skólinn byrjar aftur 2. jan! Já, þá er alveg kreisí. Maður verður varla búinn að kyngja jólasteikinni þegar við erum mætt í 9-17 vinnu í skólanum. Í janúar tekur maður bara einn kúrs og hann er kenndur í átta tíma á dag í þrjár vikur. Það verður spennandi að prófa það.
Núna er annars nóg að gera eins og venja er á þessum tíma. Við erum á fullu að klára lokaverkefnin í kúrsunum og ætlum helst að vera búin að öllu þegar Nína og Nenni koma til okkar 1. des. Oh, það verður svo frábært að fá þau í heimsókn. Fyrsta alvöru heimsóknin til okkar. Þau verða yfir helgina og við munum hafa það notalegt í jólastemmningunni hér í Köben; kíkjum á jólamarkaðinn í Tívolíinu og röltum á Strikinu. Ég hlakka rosa til!
Já, eintóm gleði hérna megin ;-) En hjá ykkur?
4 ummæli:
Úff! Já, það hljómar ekki vel - en þú átt eftir að standa þig með prýði eins og venjulega ;-)
Mmmm... ég væri til í að koma á þá tónleika...
Já, gott að heyra að þið eruð lukkuleg. Vona svo að þið njótið tímans heima, efast ekki um að fjölskyldan á eftir að dekra við ykkur ;-)
Gangi þér vel Brynhildur!
Knús og kossar,
Jóhanna
Hlakka til að sjá ykkur um jólin :)
Hlakka til að sjá ykkur:)
Skrifa ummæli