Ég ætla að hætta með hitt bloggið mitt. Tilgangurinn með því hefur alltaf verið að vera asnalegur, helst án þess að allir, þ.e. Mamma, átti sig endilega á því hvað ég get verið asnalegur.
Því er því hér með slúttað og skora ég því Hörpu og Skötuhjúin S&E að hætta sínum líka. Þetta er bara tímasóun. Bandvíddarsóun líka fyrir þá sem skoða þetta.
Well, Stuðlaugin klukkaði mig.
Núverandi tími: 14:08 (í tíma að fylgjast ekki með)
Núverandi föt: Gallabuxur, föðurland, naríur, tveir eins sokkar, bolur, skyrta.
Núverandi skap: Bara þokkalegt, spenntur fyrir svínahnakkanum sem bíður eftir að vera grillaður í (rembingshljóð) og borðaður af mér.
Núverandi hár: Nægilega stutt til að fokkíng brúskurinn pirri mig ekki. Vildi samt að ég væri með hárrót eins og Erling.
Núverandi pirringur: Það er ekkert að gerast í skólanum. Ekkert alltof erfitt að þola það samt.
Núverandi lykt: Mandarínulykt af höndunum mínum.
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Fylgjast með.
Núverandi skartgripir: Trúlofunarhringur, úr og hringur í...
Núverandi áhyggja: Ég hef aldrei áhyggjur.
Núverandi löngun: Beikon. Heavy special með extra beikoni.
Núverandi ósk: Beikon. Heavy special með extra beikoni. Aðeins meira beikon.
Núverandi farði: Slef á höku. Súkkulaði á kinn utan færis tungunnar.
Núverandi eftirsjá: Að hafa ekki downloadað í gær þegar hraðinn var góður. Hann er nefnilega slæmur núna.
Núverandi vonbrigði: Downloadihraðinn er svo slæmur.
Núverandi skemmtun: Fótbolti á morgun. Bíó á morgun. Blackadder og Fawlty Towers sem ég er að downloada.
Núverandi ást: Tulip beikon.
Núverandi staður: Stofa 70 í byggingu 421 í DTU.
Núverandi bók: Charlie and the Chocolate factory á iPodinum. Hljóðbók.
Núverandi bíómynd: Asnalegt. Star Wars í gær og In Her Shoes á morgun. Svaka stuð. Samt er Harry Potter 3 skemmtileg.
Núverandi íþrótt: Fótbolti og Pool. Ég er svo bestur í Pool. Skora líka fullt í fóara.
Núverandi tónlist: Nýja platan með Beck, Guero. Black Sabbath með Ronnie James Dio sem söngvara. Samt eiginlega bara rokk.
Núverandi lag á heilanum: Ohh! Oh! Ooooohhh! Peaches&Cream með Beck af Midnite Vultures.
Núverandi blótsyrði: Shite! Bugger! Blast!
Núverandi msn manneskjur: Það er eitthvað lítið.
Núverandi desktop mynd: HP desktop
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Borða, sjónvarp, hanky panky?
Núverandi manneskja sem ég er að forðast: Fólk sem talar bara dönsku.
Núverandi dót á veggnum: Fokkíng stór hátalari.
Ég er að átta mig á því hvað ég sakna seglanna minna mikið. Ég er að hugsa um að taka þá með mér út.
Þraut segiði? OK. Ég nenni samt ekki að númera þær.
Þraut: Hver er besta Blackadder serían?
4 ummæli:
ég heyrði eitt sinn af sjómanni sem sagðist sakna seglanna sinna.
Hae Gudlaug og Svenni
Var ad finna bloggid ykkar i fyrsta skipti. Gaman ad lesa og serstaklega ad skoda myndir. Good luck ya all...
Hvad er malid med ad madur megi segjast vera anonymous i tessum bloggcommentum mer finnst tad vera svindl?!?
Mér finnst gaman að sóa bandvídd og tíma!
Hæ, Matti! Gaman að lesa þitt blogg líka ;)
Erling, við notum:
Svenni - s053115@student.dtu.dk
og sveinnorri@gmail.com
Guðlaug - s053092@student.dtu.dk
Skrifa ummæli