mánudagur, nóvember 07, 2005

Hliðröxin

Ég sit núna í databar í byggingu 421. Þegar ég steig út úm miðdyrnar í strætó áðan var ég að hlusta á megadeth í góðum fílingi. Þetta leit út fyrir að verða ágætur dagur. Var að fara skila verkefni sem er búið að vera í bígerð í fimm vikur. Þrjár vikur í afmælið mitt upp á hár. Sumsé, ágætur, jafnvel bara fínn dagur kominn í gang. By the way, flott riff hjá rauðhærða ruddanum.
Það kom mér því frekar mikið á óvart þegar miðdyrnar lokuðust strax aftur á mig og ekki bara þannig að ég kæmist ekki strax út heldur þannig að ég festist tímabundið í dyrunum. Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið mig nægilega vel þá ættuð þið að vita að ég læt alltaf hausinn leiða mig um umhverfið. Þetta veldur því að í hvert sinn sem ég fer inn í eitthvert lóðrétt plan, N, þá er hausinn minn alltaf fyrstur ásamt annarri hvorri löpp að skera þetta plan. Þessi lífeðlisfræðilega staðreynd olli því að ég festist tímabundið í miðdyrunum með hægri löpp og haus út úr strætó og líkama\{hægri löpp og haus} inni í strætó.
Spurning mín til þeirra sem þetta lesa er eftirfarandi: Batnaði dagurinn eða versnaði við þennan atburð? Þetta eru tvær spurningar. Beint annars vegar að lesandanum og hins vegar að mér. Svarformið skal vera:
Ég já/nei
Sve já/nei

Á ég að hætta með hitt bloggið, og hafa líka rugl hér?

3 ummæli:

Tóta sagði...

Þetta bjargaði allavega mínum degi!

Nafnlaus sagði...

HAHAHAHA og mínum líka :)

Grey Svenni, alla vega getur dagurinn ekki versnað!!! Eða hvað?

harpa sagði...

ég:já
sve:nei
mér er alveg sama hvar þú ruglar - svo framarlega sem þú ruglar á annað borð