Fallegt veður hér í Danmörku á fyrsta í aðventu. Nágrannarnir að setja upp jólaljós, við líka. Lykt af nýbakaðri skúffuköku, hef ekki tíma til að baka smákökur. En Svenni á afmæli á morgun, hann verður að fá köku. Dísa, Hannes og kannski Tóta koma í kaffi. Dísa kemur með smákökur með sér, hún er búin að baka. Dugleg. Er að læra, reikna út járnabendingu í plötur, bita og súlur. Smákökur og skúffukaka eru því verðskuldaðar í kaffinu.
Afi minn átti sjötugsafmæli í gær og óskum við honum innilega til hamingju með daginn. Hann hélt svaka partý í Njarðvíkinni sem við misstum því miður af.
Gleðilega aðventu og munið eftir afmælisbarninu á morgun!
12 ummæli:
Best að tryggja sig
til hamingju með afmælið á morgun Svenni :)
Æi ég verð bara að fá að koma í afganga einhvern tíma - er bara alveg að deyja úr kvefi!
Happy birthday Sven
Hann á aafmæælííí daaag,
hann á aafmæælíííí daaaag,
hann á aaaafmæææælaaaaann Svennnniiii
hann á aafmæælííí daaag.
Húrra fyrir afmælisbarninu,
stuðkveðjur frá Hollandinu kalda og góða.
Ég held ég skilji líka eftir afmæliskveðju handa þér hér svo mér verði nú örugglega ekki hent út af netinu! Til lukku með daginn.
Til hamingju með daginn Svenni!
...finnst samt ólíklegt að ég verði búinn að gera það fyrir miðnætti þ.a. ég fæ líklega ekkert að fara á netið á næstunni... fúlt!
Til hamingju með daginn Svenni :)
Til hamingju með daginn.
Kv. frá Söru og öllum stráknunum :)
til hamingju með afmælið Svenni!
knús frá Pittsburgh,
Jóhanna og Palli
Til hamingju með daginn =) ... í gær sorry!!
Til hamingju með daginn Svenni.
Til hamingju með afmælið Svenni!!! Betra seint en aldrei ;).
Skrifa ummæli