sunnudagur, október 02, 2005

Fimm gagnslausar staðreyndir um mig

Sara klukkaði okkur Svenna um daginn. Svenni var fljótur að bregðast við en hér koma mínar staðreyndir:

1. Ég er með fullkomnunaráráttu á háu stigi! Já, ég viðurkenni það. Ég verð að gera allt 150%, og þá meina ég ALLT!!! Snarbiluð er orð sem margir myndu nota yfir mig.

2. Ég er mjög flughrædd. Þrátt fyrir að vera nokkuð vel gefin þá virðist ég ekki skilja það að það eru miklu meiri líkur á að ég drepist á hjólinu mínu á leiðinni í búðina en í flugvél á leið til Íslands. Ég hef heyrt að þetta gæti tengst staðreynd nr. 1 þar sem "perfectionistar" vilja hafa stjórn á öllu, hehemmmm... Þetta byrjaði allt með hræðilegu flugi til Færeyja, þar sem ég var ein að ferðast út af vinnunni.

3. Mér finnst rosalega gaman að taka til og þrífa. Það er eitthvað svo róandi og maður slappar vel af á eftir. Einhverra hluta vegna tók Haffi vinur minn upp á því að kalla mig Monicu ;) Ég á erfitt með að fara í partý án þess að byrja að taka til og setja tómar dósir í poka.

4. Mér finnst almennt mjög leiðinlegt að stunda íþróttir. Ég fæ mína útrás með ryksuguna á fullu og skrúbbinn í klósettinu. Maður getur sko svitnað rækilega við húsverkin!

5. Mér finnst nánast allur matur góður. Ég mun seint vera kölluð gikkur. Reyndar finnst mér rósakál ofsalega vont, kjúklingabaunabuff vekur slæmar minningar og svo finnst mér of mikið af kjöti, þ.e.a.s með litlu meðlæti, ekkert voðalega spennandi.

Svenni misskildi aðeins leikinn og hélt að allir sem læsu væru klukkaðir. Það er ekki rétt, svo við viljum klukka Helga hennar Söru. Hann á örugglega erfitt með að velja AÐEINS 5 staðreyndir!

Að lokum: Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna úr partýi hjá Pawel og Önnu Heru og fleiri myndir af nýjum húsgögnum (erum alltaf að kaupa eitthvað nýtt!).

3 ummæli:

Sara sagði...

Hahahahaha kjúklingabaunabuff..... úff hvað ég man eftir því...... ;)

Nafnlaus sagði...

Hvaða skot eru þetta stúlkurnar mínar! Kjúklingabaunabuff er mjög góður matur.......
ma

harpa sagði...

He he ég man eftir kjúklingabaunaréttnum hennar mömmu minnar - ég lifði hann af í 18 ár. Pant ekki fá kjúklingabaunabuff!