Um næstu helgi er von á Steinu (sem var með mér í verkfræðinni) hingað til Köben. Hún er að fara í árshátíðarferð með vinnunni sinni en hefur nógan tíma til að hitta okkur Tótu líka - frábært! Við kíkjum líklega með henni á Strikið, á kaffihús, út að borða og margt fleira skemmtilegt. Síðast en ekki síst munum við skella okkur á SÁLARBALLIÐ!!! Það verður örugglega meiriháttar fjör ;-)
Við Svenni höfum nú ekki verið iðin við lærdóminn í dag en við erum þó loksins búin að klára að mála. Við áttum eftir að mála einn vegg í eldhúsinu og aðra hliðina á hurðunum. Það er gott að vera búin að þessu. Svo í rólegheitunum hér heima heyrði ég skyndilega mjög skemmtilegt hljóð - það voru bjöllurnar í ísbílnum! Við höfum ekki einu sinni séð ísbílinn áður svo við ákváðum að skella okkur út og kíkja á þetta. Hann var þá bara hérna á bílastæðinu við kollegi-ið og íbúarnir hérna þustu út að kaupa sér ís. Við keyptum okkur alvöru jarðarberjaís og íspinna. Namminamm!!!
Í kvöld kíkjum við kannski í bíó, það er verið að frumsýna Corpse Bride og þar sem Tim Burton myndir eru farnar að vekja mikinn áhuga hjá mér þá kíkjum við kannski á hana. Góða helgi!
1 ummæli:
Hæ skvís :)
Ég vaaaar að frétta af síðunni þinni! Náttúrulega afar ánægð með að vera nefnd þar á nafn :þ Hlakka mikið til að hitta ykkur stelpurnar!!!!
Túrílú :*
Skrifa ummæli