föstudagur, október 21, 2005

Fleiri myndir frá Stokkhólmi

Ég er nú búin að setja inn restina af myndunum frá Stokkhólmi - sjá hér!

Annars er búið að vera mikið læristuð á okkur Tótu síðan við Svenni komum frá Svíþjóð og Tóta frá Íslandi. Hef því hreinlega ekki haft tíma til að blogga. Við erum að vinna verkefni í Bygningsenergi sem við eigum að skila næsta föstudag. Við lentum með einhverjum manni í þessu verkefni sem við vorum ekkert allt of sáttar við - hann lyktar eins og fyllibytta! Svo vorum við búum að skipta verkum fyrir haustfríið og við Tóta ætluðum að sjá um að setja allt draslið saman. Svo sendi hann okkur sinn hluta og hann skrifaði varla eina blaðsíðu! Og hans litlu útreikningar voru vitlausir að okkar mati! Svo við gerðum hans hluta upp á nýtt og svo vitum við ekkert hvað við segjum við hann. Okkur finnst allavega ekki eðlilegt að hann kvitti undir verkefnið þegar við skilum því. Vesen!

Stokkhólmsferðin var hins vegar alveg æðisleg!!! Við höfðum það svo gott og það var svo gaman að hitta þau öll. Viktor er búinn að breytast svo mikið síðan ég sá hann síðast en Svenni var að sjá hann í fyrsta sinn. Fannar er alltaf jafn rólegur og þægur svo maður varla tekur eftir honum! En við fórum og horfum á hann á fótboltaæfingu og ég labbaði með Söru að sækja hann í skólann. Hann er orðinn svo mikill strákur!

Svenni fékk reyndar rosa hálsbólgu áður en við fórum svo hann var bara heima á laugardaginn á meðan við hin skruppum í bíltúr niður í bæ og löbbuðum aðeins í gegnum bæinn. Á sunnudaginn var Svenni svo til í að kíkja eitthvað út svo við Sara, Svenni og Fannar skelltum okkur aðeins í Farsta (lítill verslunarkjarni stutt frá heimili Söru) og kíktum aðeins í búðir og fengum okkur kaffi. Á mánudag fóru Helgi og Fannar í vinnu og skóla en við hin kúrðum fram eftir og fórum aðeins í bæinn eftir hádegi. Við Svenni keyptum þar DVD-safn með Matrix-myndunum en tókum eftir því, á leiðinni heim, að það vantaði nokkra diska í hulstrin. Svo það þýddi að við þurftum að fara aftur í bæinn á þriðjudaginn og skila þessu. Það var nú ekki alveg planið, en Sara og Viktor komu með okkur og við fórum bara á bílnum svo við gætum öll verið komin heim til að sækja Fannar á réttum tíma í skólann. Við náðum þó að slaka aðeins á og fá okkur hádegismat og svoleiðis.

Það var bara alveg yndislegt að hitta þau og skrítið að núna erum við bara í næsta landi! Lestarferðin tók ca.5 og 1/2 tíma í allt. Okkur fannst við samt ekki hafa farið í annað land - mjög spes! En við vonum að þau geti einhvern tíma komið í heimsókn til okkar og svo er nokkuð öruggt að við skreppum til þeirra aftur. Við hittumst nú líka öll um jólin þar sem nú komast allir til Íslands, líka Helgi! Ég er bara strax farin að hlakka til jólanna - er það ekki í fína lagi? ;)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jú Guðlaug mín, það er sko ekkert eðlilegra að hlakka til jólanna ...

skemmtilegar myndir ;-)

kveðja, Jóhanna