
Á föstudagskvöldið gerðum við okkur ferð niður í Lyngby og fórum á kaffihús og í bíó. Við fórum að sjá myndina The Brothers Grimm. Mér fannst þessi mynd mjög skemmtileg, en hefði þó alveg verið til í að sjá Charlie and the Chocolate Factory aftur, hún var svo æðisleg! En þetta var ekki slæmt - mun skemmtilegra en að sitja yfir sjónvarpinu heima.
Í gær fórum við svo í innkaupaleiðangur til Holte og versluðum fullt af kjöti og grænmeti, og ég veit ekki hvað og hvað. Allt kostaði þetta miklu minna en það gerir á Íslandi. Mjög ánægjulegt. Um seinnipartinn ákváðum við svo að skreppa í smá hjólatúr. Hann varð öllu lengri heldur en við ætluðum, en þó skemmtilegur, svo við vorum ansi þreytt og löt þegar við komum heim.
Dagurinn í dag hefur svo að mestu farið í lærdóm, kominn tími til! Ég er byrjuð á stóru verkefni í steypukúrsinum mínum, en það hefur verið frekar erfitt að byrja þar sem þessi kúrs og allar kennslubækurnar í honum eru á dönsku. Svo það hefur í raun tekið mig næstum 3 vikur að skilja nákvæmlega leiðbeiningarnar með verkefninu!
Í lok þessarar viku munum við svo halda með lestinni til Stokkhólms, jibbí! Langþráð ferð að heimsækja Söru systur og fjölskyldu. Viktor Snær (yngri sonur hennar) er nú farinn að skríða og standa upp svo það verður fjör að elta hann svolítið. Svo er Fannar Már (sá eldri) byrjaður í skóla og við Svenni fáum kannski að fylgja honum í skólann í næstu viku, en við ætlum að vera þangað til á miðvikudag. Þetta verður sko alveg frábært!
4 ummæli:
Dugleg stelpan - bara farin að læra!
Hm ég held ég þurfi að fara að sjá súkkulaði verksmiðjuna! Annars var alþjóðleg kvikmyndahátíð hérna í Rvk og fullt af spennandi myndum - en við komum okkur aldrei af stað... fáránlegt!
Hæ Guðlaug og Svenni! Gaman að lesa smávegis um líf ykkar í Köben... Fór inná síðuna hjá Söru og fann ykkar síðu þar.... Sendi komment aftur seinna...
Kær kveðja,
Ásdís frænka í Reykjanesbæ (sem verður ekki sameinaður Garði og Sandgerði....)
Takk fyrir kommentið, Ásdís! Gaman að heyra að þú sért búin að finna okkur ;) Heyrum vonandi frá þér fljótlega aftur.
Skrifa ummæli