mánudagur, desember 05, 2005

Takk fyrir samveruna!



Já, nú er liðin alveg hreint frábær helgi. Hún byrjaði á fimmtudagskvöldið en þá voru Nína og Nenni búin að bjóða okkur og Hildunum tveimur út að borða á geggjaðan ítalskan stað. Hildarnar tvær eru frænkur Svenna, ein úr hvorri fjölskyldu. Við skemmtum okkur konunglega, hlógum, drukkum og borðuðum ljúffengan mat.

Á föstudag fóru N&N í julefrokost með Pétri "afa" og dóttursyni hans, en þeir búa hér í næsta bæ. Upphaflega ætluðum við Nína að kíkja í búðir eftir það, en sem betur fer ákváðu þau að taka því rólega og komu því bara heim og við gátum aðeins slakað á. Um kvöldið tókum við svo lestina út á Amager og fórum á Blue Elephant að borða. Við höfðum öll borðað á svoleiðis stað áður, við Svenni í París og N&N í Dubai og hér í Köben. Við hlökkuðum mikið til þar sem þetta var eiginlega uppáhalds veitingahúsakeðja okkar allra. En þvílík vonbrigði!!! Þetta er tælenskur staður og það var verið að spila gamla ameríska slagara! Svo tóku gestir staðarins sig til og dönsuðu við ósköpin! Hnuss, þetta var sko ekki sú töfrandi, tælenska stemmning sem við höfðum átt í vændum. En jæja, við skemmtum okkar ágætlega og það notalegt að fara bara fjögur saman út að borða.

Á laugardag tókum við Nína daginn snemma niðri á Striki, þar sem hún hafði ekki enn komist í almennilegar búðir. Hún náði að kaupa svolítið og svo í hádeginu var N&N boðið til vinahjóna sinna, Poul og Kirsten, sem búa nánast á Strikinu, og við Svenni dunduðum okkur á meðan og keyptum nokkrar jólagjafir. Þvílíkt mannhaf af fólki sem var í bænum! Þetta var eins og á Laugaveginum á Þorláksmessu. Þannig að það var fínt að taka því bara rólega. Um kvöldið var okkur svo öllum boðið í dýrindis mat til Poul og Kirsten. Það var mjög gaman að hitta þau og fínt að æfa okkur aðeins í dönskunni ;)

Í gærmorgun héldu hjónakornin svo heim á leið. Það er skrítið, en skemmtilegt að hugsa til þess að við hittum þau - og alla heima á Íslandi! - eftir rétt rúmar tvær vikur!!! Þið verðið svo að panta tíma hjá okkur, þar sem við erum að verða þéttbókuð allan tímann!!! Can't wait!

2 ummæli:

harpa sagði...

ha tómt á Þollák eru baunirnar ekki eitthvað að mis!

En annars panta ég fyrir hönd HD kvöldið 30 des!

Nafnlaus sagði...

Ég fór á Blue Elephant í London, svaka flott, mínus vondur kokkteill í kókoshnetu. Mín ætlaði sko aldeilis að endurupplifa stemmninguna á Benedorm. Tíhí ég á svaka fína mynd af okkur Guðlaugu með kókoshnetur...