sunnudagur, desember 11, 2005

Harry Potter og litlu jólin!


Þriðji sunnudagur í aðventu er senn á enda og jólaskapið komið í hámark! Það er margt sem veldur því að Guðlaugin er orðin spenntari en venjulega fyrir jólin:
- eftir einungis eina og hálfa viku komum við til Íslands og allir fjölskyldumeðlimir okkar verða á landinu um þessi jól
- okkur var boðið til Dísu og Hannesar í gærkvöldi og héldum við litlu jólin með tilheyrandi reyktum silungi, lambalæri, Waldorfsalati og ís og ávöxtum, pakkaleik og Trivial Pursuit, vorum tíu Íslendingar þegar mest var
- er búin að skrifa jólakort!!!
- er búin að kaupa margar jólagjafir, spennó spennó
- er búin að setja seríur og aðventuljós í glugga

Þess má geta að undanfarin ár (á Íslandi) hef ég gert síðastnefndu atriðin þegar ég hef verið búin í prófum - eða bara sleppt því! Ófá árin hef ég ekki haft tíma til að gera nokkurn skapaðan hlut þar sem prófin hafa oft ekki klárast fyrr en 21. eða 22. des. Það gera þau reyndar líka núna, en munurinn er sá að ég fer í tvö próf núna en ekki fimm eða fleiri eins og heima. Danirnir eru nefnilega ekkert voðalega hrifnir af prófum og láta því oft nægja að gera verkefni og stutt tímapróf. Þetta finnst mér einkar þægilegt fyrirkomulag og mikil tilbreyting!

Á föstudaginn skilaði ég hinu stórkostlega steypuverkefni mínu og hélt niður í Lyngby með Tótu og Svenna. Við versluðum nokkrar jólagjafir, fórum á kaffihús og að sjá Harry Potter og flammernes pokal, eins og hún heitir á dönsku. Algjör snilldarmynd, og yfirhöfuð bara frábær dagur! Svenni hefur svo verið duglegur að lesa um helgina þar sem hann fer í próf í fyrramálið í Styrkelære 3 og aftur á fimmtudaginn í Køretøjsteknik. Ég fer í mín tvö próf 20. og 21. des. Og svo er það Ísland 22. des!!!

Hlakka til að sjá ykkur öll - eða sem flest að minnsta kosti ;)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hlakka til að sjá ykkur!!! Einkar gaman þegar fólk er að blogga svona þegar ég á að vera að lesa undir próf :) svona á þetta að vera!