föstudagur, desember 23, 2005

Komin til Íslands!

Í gær eyddum við síðasta deginum í Danmörku fyrir jól á Strikinu. Tókum því bara rólega og kíktum á kaffihús. Voðalega notalegt! Í dag er nóg á dagskrá; hettusóttarsprauta (!!!), kíkja í nýjar íbúðir fjölskyldumeðlima, American Style, Lækjarbrekka - eintóm gleði!

Við verðum bæði með gömlu íslensku símanúmerin okkar á meðan við erum á landinu. Sjáumst vonandi!

1 ummæli:

Guðlaug sagði...

Híhí! Já, maður þarf bara að bólusetja sig eins og þegar farið er til Asíu eða Afríku.