miðvikudagur, desember 21, 2005

Búin í prófum - Ísland á morgun!

Fyrstu prófatörninni í DTU er nú lokið. Við erum bæði mjög sátt! En mikið er nú stressandi að taka próf á nýjum stöðum. Það eru allt aðrar venjur hér og í prófum er maður mjög viðkvæmur fyrir breytingum. Hér eru til dæmis laus blöð sem á að skrifa prófúrlausnina á og á síðustu blaðsíðuna á maður að setja undirskrift. Blöðin fara svo í lokað umslag. Auðvitað gleymdi ég, snillingurinn, að skrifa undir á síðustu blaðsíðuna í prófinu í gær og fór alveg í kerfi. Það voru þó fleiri útlendingar sem klikkuðu á því sama og það bjargaðist. Eitt virðist þó sameiginlegt með prófafyrirkomulaginu hér og heima - gamla fólkið sem situr yfir!!! Ótrúlega fyndið! Þetta er stundum svo skondið lið; heyrir illa, talar hátt, leysir krossgátur, prjónar...

Við komum heim annað kvöld...

Engin ummæli: