þriðjudagur, október 11, 2005

Von er á góðum gesti

Pétur, bróðir Svenna, kemur til okkar frá Hollandi annað kvöld. Hann ætlar að gista hjá okkur í eina nótt, en hann er að fara að funda eitthvað hér í Köben - frábært! Heppilegt að við skulum búa þar, haha! Við hlökkum rosa til að fá hann til okkar. Svo er spurning hvort við getum skroppið í heimsókn til fjölskyldunnar í Hollandi áður en hún verður ekki lengur í Hollandi. Annars hittum við þau að sjálfsögðu á Íslandi um jólin. Við ætlum að gefa Pétri reyktan silung sem við veiddum í sumar. Gaman að því!

Lífið gengur annars sinn vanagang. Ég er búin að finna út úr því hvernig á að breyta lyklaborðinu í skólanum yfir á íslensku - svo ég er í skólanum núna. Er á leið í verkefna-aðstoðar-tíma í steypukúrsinum. Hér fáum við sko nóg af aðstoð við verkefnin - þ.e.a.s. ef maður kann að nýta sér það. Á Íslandi erum við alls ekki vön þessu. Þar reynir maður fram í rauðan dauðann að leysa verkefnin sjálfur. Og ef að gengur ekki þá fær maður aðstoð frá skólafélögum. Og ef það gengur svo ekki þá fer maður loksins og bankar upp á hjá kennaranum. Hér fer alltaf helmingur af hverjum tíma í að sitja og reikna dæmi og kennarinn gengur á milli og aðstoðar. Ég þarf aðeins að venjast þessu, er meira fyrir að gera hlutina sjálf.

3 dagar í Stokkhólm!!!

5 ummæli:

Guðlaug sagði...

Takk fyrir, Brynhildur mín! Já, fyndið að þú skulir vera í Köben akkúrat þegar ekkert okkar er í borginni! Þú verður bara að koma aftur seinna ;)
Góða skemmtun í Berlín!!!

harpa sagði...

Já og góða skemmtun til ykkar í Stokkhólmi! Ég bið að heilsa borginni!

Nafnlaus sagði...

Hæ frænka,

Vildi bara kvitta fyrir mig.
Bestu kveðjur frá Mósó
María og fjölskylda

Tóta sagði...

Hey - meira að segja ég var búin að fatta þetta með lyklaborðið fyrr!

Guðlaug sagði...

Takk fyrir kveðjurnar, María! Alltaf gaman að heyra hverjir lesa bloggið ;)