fimmtudagur, október 27, 2005

Nýjar myndir!

Oh, ég er svo dugleg að setja inn myndir, er það ekki? ;)

Annars erum við komin í helgarfrí þar sem héðan í frá eru bara verkefnatímar í steypu á föstudögum hjá mér, og mér finnst betra að vinna verkefnið heima, í ró og næði. Þannig að við lærum væntanlega á morgun og á sunnudaginn, en á laugardaginn kíkjum við kannski í góðan hjólatúr til Holte og skoðum allar flottu villurnar þar. Þar er nefnilega svokallað "millahverfi" þar sem húsin eru eiginlega bara hallir í okkar augum, með risastórum lóðum og innkeyrslum með hliðum og svona. Eða við kíkjum bara á hina eina sönnu höll niðri í bæ og í kjölfarið í Kongens Have. Sama hvað við gerum verður myndavélin með og við deilum þessu öllu með ykkur, elskurnar okkar!

2 ummæli:

Sara sagði...

Dugleg stelpa ;)

Ætli ég verði ekki að koma bráðum og athuga hvort sófinn sé nokkuð mýkri en minn hehe.

Guðlaug sagði...

Takk, elsku stóra systir!

Jú, ég held að þú verðir bara að koma og prófa ;)